Posts tagged as:

Rauðvín

Pipar, pipar

Höfundur: Eiríkur Þann 29. desember 2011

Fyrir jól fór ég í tvígang út að borða með vinnufélugunum, og í bæði skiptin fórum við á veitingastaðinn Peppar, Peppar hér í Uppsölum. Staður mun vera nokkuð vinsæll og hefur undanfarin 3 ár verið útnefndur veitingastaðir ársins af lesendum bæjarblaðsins í Uppsölum. Guðrún hefur tvívegis borðað þarna og látið vel af. Ég bar því nokkrar væntingar til staðarins og mér fannst staðurinn standa undir þeim.  Ég fékk reyndar sama mat og vín í bæði skiptin, en í seinna skiptið voru tveir aukaréttir (þ.e. við fengum fullan “avsmaksmeny”, þ.e. fjölréttamatseðil).  Fyrst fengum við laxaterrín, því næst graskers- og trufflusveppasúpu með andaconfite, þá smjörsteiktan vatnaviðni (gös á sænsku), hreindýrasteik og að lokum perur með After Eight-frauði (laxinn og vatnaviðninn fékk ég bara í seinna skiptið).

Með fiskinum og súpunni drukkum við Turkheim Alsace Riesling Reserva 2009, dæmigerður þurr riesling með apríkósum og hunangi, en með hreindýrinu drukkum við Moebius Tempranillo 2007 frá Argentínu, þægilegt matarvín með krydduðu berjabragði og ágætisfyllingu.  Bæði vínin fá 7,5 í einkunn hjá mér.

Ég tel óhætt að mæla með Peppar Peppar og hlakka til að koma þangað aftur.

{ 0 comments }

Hið fullkomna Boeuf Bourguignonne

Höfundur: Eiríkur Þann 22. desember 2011

Síðastliðinn mánudag komu Össi og Gulla í mat til okkar.  Þetta matarboð var fyrir löngu orðið tímabært og því ekki um annað að ræða en að vanda vel til verksins.  Ég notaði því tækifærið og eldaði Boeuf Bourguignonne í þeirri útfærslu sem ég var búinn að hugsa út (mín útfærsla á uppskrift Thomas Keller á The French Laundry).  Með þessu drukkum við J.L. Chave St. Joseph Mon Coeur Côtes du Rhône 2005 og útkoman var frábær.

Hér er svo uppskriftin að hinu fullkomna Boeuf Bourguignonne (ef maður er að flýta sér þá er hægt að ná þessu á 3 tímum, annars er best að gera kjötið daginn áður og klára svo réttinn næsta dag):

Hráefni:

  • 1 flaska rauðvín (ekki eitthvað sull, en samt ekkert dýrt vín, best að velja eitthvað franskt)
  • 2 saxaðir laukar
  • 2 saxaðar gulrætur (3 ef litlar)
  • 1 stór blaðlaukur, sneiddur
  • 2 saxaðir skalottulaukar
  • 500 g sveppir (helst litlir sveppir, þá eru þeir fleiri!) – saxið rúm 100g (þannig að verði 1 bolli með söxuðum sveppum)
  • 1 búnt ferskt timjan
  • 1 búnt fersk steinselja
  • 7 lárviðarlauf
  • 2 msk svartur pipar, heill
  • 9 hvítlauksrif (kraminn, hýðið haft á)
  • 2 msk salt
  • 1,5 kg nautakjöt, skorið niður í 5 x 3 cm teninga
  • Olía til steikingar
  • 1,5 – 2 lítrar kálfa- eða nautasoð
  • 16 gulrætur (mjóar, ekki of stórar), skornar í tvennt og hvor helmingur klofinn í 4 bita á lengdina
  • 1 kg kartöflur, afhýddar og skornar í 1 cm þykkar sneiðar (ég notaði reyndar Asperges-kartöflur, sem eru langar og mjóar, afhýddi þær en sneiddi ekki niður)
  • 150 g beikon, skorið niður í 3 cm langar sneiðar
  • 2 msk smjör, ósaltað
  • 20 perlulaukar, soðnir

Aðferð:

  1. Setjið rauðvín, 1 saxaðan lauk, 1 saxaða gulrót, helminginn af blaðlauknum, 1 bolla af söxuðum sveppum, 3 timjangreinar, 6 steinseljugreinar, 2 lárviðarlauf, ½ tsk svört piparkorn og 3 hvítlauksrif í pott – sjóðið niður um 2/3 (þar til eru 2 dl eftir).
  2. Saltið og piprið kjötið, og brúnið í olíu við háan hita.  Ekki setja of marga bita á pönnuna í einu, betra að gera þetta í nokkrum skömmtum.
  3. Setjið það sem eftir er af rauðvínssoðinu úr lið 1 er sett í ofnfast form (eða stóran pott sem má setja í ofn) og bætið við 3 timjangreinum, 3 steinseljugreinum, 2 lárviðarlaufum, 2 hvítlauksrifjum og því sem eftir er af saxaða lauknum, gulrótinni og blaðlauknum.  Leggið kjötið ofan á og hellið kálfa-/nautakjötsoðinu þannig að rétt fljóti yfir kjötið. Setjið í 175 gráðu heitan ofn.  Eldið í 2 klst.
  4. Takið út úr ofninum og færið kjötið yfir í annað eldfast mót eða pott.  Soðið síað og það síðan soSðið niður um rúmlega helming.  Þegar hingað er komið má hella soðinu yfir kjötið og geyma í ísskáp yfir nótt.  Ef ætlunin er að bera kjötið strax fram er best að gera lið 5-9 á síðari klukkutíma kjötsins í ofninum.
  5. Setjið kartöflur í pott ásamt 2 timjangreinum, 1 lárviðarlaufi,  10 svörtum piparkornum, 2 hvítlauksrifjum og 1 msk salti.  Setjið vatn yfir svo rétt fljóti yfir kartöflurnar.  Sjóðið í 10-15 mínútur þar til kartöflurnar eru soðnar.  Hellið af vökvanum og hreinsið kryddjurtirnar frá.
  6. Setjið gulrætur í pott ásamt 4 timjangreinum, 1 lárviðarlaufi,  10 svörtum piparkornum, 2 hvítlauksrifjum og 1 msk salti.  Setjið vatn yfir svo rétt fljóti yfir kartöflurnar.  Sjóðið í 5 mínútur.  Hellið af vökvanum og hreinsið kryddjurtirnar frá.
  7. Leggið beikonbitana á bökunarpappír og ofnsteikið í 10 mínútur, snúið þeim og ofnsteikið í 10 mínútur til viðbótar.  Þerrið beikonið með eldhúspappír.
  8. Skerið af stilknum á sveppunum við neðri brún sveppsins.  Steikið sveppina í smjöri í 3-4 mínútur.
  9. Steikið perlulaukana upp úr smjöri í 3-4 mínútur.
  10. Ef kjötið hefur verið kælt er það nú sett í ofnfast mót/pönnu og vökvanum hellt yfir kjötið.  Sveppunum og laukunum blandað saman við og hitað í ofni í 10 mínútur við 190 gráður.
  11. Kjötið sett á stórt fat, sósunni hellt yfir, beikonbitarnir lagðir ofan á, og kartöflum og gulrótum raðað í kring. Stráið síðan saxaðri steinselju og sjávarsalti yfir.  Ef fatið er ekki nógu stórt til að hægt sé að setja allt á það er hægt að bera gulræturnar og kartöflurnar fram í skálum (stráið þá líka salti og steinselju yfir).

Verði ykkur að góðu!

{ 0 comments }

Petalos 2009

12.17.2011

Eitt af þeim vínum sem ég pantaði mér af topp-100 lista Wine Spectator er Descendientes de J. Palacios Bierzo Pétalos 2009 (93 punktar, 26. -sæti).  Vínið kemur frá héraðinu Bierzo á NV-Spáni, sem er tiltölulega nýtt vínræktarhérað.  Þar er þrúgan Mencia allsráðandi og Pétalos er einmitt gert úr þeirri þrúgu.  Vínið er dökkt, með góð [...]

Lesa meira →

Chateau Prat-Majou-Gay

08.28.2011

Já, það er til vínhús og vín með þessu nafni!  Það kemur frá Languedoc-Roussillon í suðurhluta Frakkland, nánar tiltekið frá Minervois.  Ég keypti 2008-árganginn um daginn sem hugsanlegan húsvínskandidat (eins og lesendur vafalaust eru nú farnir að taka eftir þá er ég alltaf að leita að nýju húsvíni) og við vorum bara nokkuð ánægð með [...]

Lesa meira →

Gamall vinur í heimsókn

08.27.2011

Við höfum smá matarboð um síðustu helgi og buðum m.a. Gísla og Jóhönnu.  Þau færðu okkur flösku af Penfolds Koonunga Hill Shiraz Cabernet 2010 og ég varð nokkuð ánægður að sjá þá flösku, því það er orðið ansi langt síðan ég prófaði þetta vín.  Í kvöld grillaði ég svo nautakjöt á spjóti og fannst tilvalið [...]

Lesa meira →

Brunello og Barolo

07.21.2011

Ég var að fá í hús 3 flöskur af Campogiovanni Brunello di Montalcino 2006 – stórkostlegt vín sem Wine Spectator gefur 96 punkta, og það kostar aðeins 299 sænskar krónur. Vínið þarf helst smá tíma í viðbót til að toppa en mig dauðlangar samt að smakka – vonandi stenst ég freistinguna um helgina og bíð [...]

Lesa meira →

Næsta húsvín

06.24.2011

Þá er fyrsta húsvínið uppurið og leit hafin að því næsta.  Við erum mjög ánægð með bæða Bolgarello og Campo Viejo en langar samt aðeins að breyta til.  Við skruppum því í vínbúðina í gær og keyptum nokkra nýja kandidata – Lindemans Bin 40 Merlot 2010, Lindemans Bin 50 Shiraz 2010 og Casillero del Diablo [...]

Lesa meira →

Hitabylgjan heldur áfram…

06.12.2011

Já, það er sko sannkölluð hitabylgja hérna og nánast skömm frá að segja að maður er að verða pínu þreyttur á því að það sé 26-30 stiga hiti á hverjum degi.  Pirringurinn felstu þó kannski helst í því að Theódór sefur ekki vel í þessum hita og ég er ekki enn kominn í sumarfrí!  Sumarfríinu verður [...]

Lesa meira →

Hitabylgja

06.04.2011

Það er sannkölluð hitabylgja sem gengur yfir Uppsala þessa dagana.  Þegar þetta er skrifað er klukkan hálf níu að morgni og hitinn er þegar kominn yfir 20 gráður!  Í gær var þvílík rjómablíða - sól, hægur andvari og 25 stiga hiti, sem er bara nokkuð gott í byrjun júní.  Við sátum úti á palli stærstan hluta [...]

Lesa meira →

Árshátíðin

06.02.2011

Vínklúbburinn Reinhardt hélt fyrstu árshátíð sína um síðustu helgi.  Þemað var ítalskt – bæði matur og vín.  Í forrétt gerðum við Carpaccio og með því drukkum við Stefano Antonucci Verdicchio Classico Riserva 2007.  Það var nokkuð sérstakt vín og í fyrsta sinn (að ég held) sem við prófuðum vín úr þessari þrúgu.  Vínið er gyllt [...]

Lesa meira →