Posts tagged as:

Rhone

Delas Les Launes

Höfundur: Eiríkur Þann 31. mars 2011

Í nýjasta Insider-hefti Wine Spectator er fjallað um nokkur ný og spennandi vín.  Áhugaverðast finnst mér að Delas Crozes-Hermitages Les Launes 2009 fær 91 stig.  Þetta vín fæst bæði á Íslandi og í Svíþjóð og kostar ekki mikið.  Hér í Svíþjóð kostar flaskan 139 SEK en á Íslandi 3370 kr.  Reyndar er það 2007-árgangurinn sem virðist vera fáanlega á Íslandi skv. heimasíðu Vínbúðanna, en það er ekkert lélegt vín heldur, fær 90 punkta og ágætist kaup í því.

{ 0 comments }

Boom Boom Shiraz

Höfundur: Eiríkur Þann 19. október 2010

Í gær fór ég með vinnufélögunum út að borða á veitingastaðnum Jay Foo hér í Uppsölum.  Þetta er nokkuð nýtískulegur staður sem býður upp á mat í fusion-stíl, skemmtilega innréttaður og sennilega sá staður í Uppsölum sem býður matargestum upp á besta útsýnið.  Vínlistinn þeirra er líka nokkuð sérstakur.  Hann er ekki langur, blanda af nýja og gamla heiminum, en vínin frá nýja heiminum hafa öll nokkuð sérstök heiti – Stump Jump frá d’Arenberg, Red Truck, og svo vínið sem ég smakkaði í gær – Boom Boom Shiraz frá Charles Smith í Washington.  Þetta er nokkuð skemmtilegt vín, óvenjumikill blómailmur fyrir shiraz, plómur og sólblóm ásamt sætum kryddkeim.  Nokkuð áberandi berjabragð, vægt piprað, dálítil tannín en skortir aðeins upp á sýruna.  Þokkalegt eftirbragð – Einkunn: 8,0 – Góð Kaup.

Það er nokkuð langt síðan ég tjáði mig síðast hér á Vínsíðunni en það hefur ekki verið mikill tími til vínsmökkunar að undanförnu.  Ég náði þó að prófa J. L. Chave Cote du Rhone Mon Coeur sem ég pantaði mér um daginn.  Það var mjög ungt og óþroskað, áberandi eikarkeimur og smá útihús.  Gekk vel með nautinu en má alveg bíða í 2-3 ár til viðbótar. 

Vínbúðin mín flutti yfir götuna fyrir u.þ.b. 1 mánuði og ég verð að viðurkenna að ég hef ekki enn komið þangað inn.  Keizarinn og Brekkan eru báðir á því að búðin hafi ekki batnað við flutninginn, hún sé þröng og óspennandi.  Ég skil svo sem ekki af hverju hún var að flytja fyrst hún var ekki betrumbætt, en ég geri mér grein fyrir því að frítt húsnæði í 5 ár er nokkuð góð ástæða (það er sögð vera aðalástæðan, enda mikilvægt fyrir eiganda verslunarmiðstöðvarinnar að lokka að viðskiptavinina).  Ég er í fríi um helgina og hver veit nema ég láti verða af því að kíkja inn…

{ 0 comments }

Enn eitt góðærið í Rónardal

12.05.2009

Nú er 2007-árgangurinn frá Rón að koma í sölu og hér er enn einn topp-árgangurinn á ferðinni.  Frá árinu 2000 hefur hver einasti árgangur (að 2002 undanskildum) verið mjög góður og í sumum tilvikum frábær.  Í nýjasta Wine Spectator er fjallað um Rónarvín og birtar árgangstöflur fyrir Norður- og Suður-hluta Rónardals: Norður-Rón Einkunn Drekka/Geyma? Helstu [...]

Lesa meira →

Gleymdi að panta!

10.18.2009

Já, það er skömm frá að segja en ég hreinlega gleymdi að panta mér Bordeaux 2006 í síðustu viku!  Valið stóð helst á milli Talbot, Léoville-Barton og Chasse-Spleen en nú verð ég að bíða fram í lok næstu viku til að sjá hvort það sé eitthvað eftir handa mér.  Ég var reyndar orðinn pínu þreytt, [...]

Lesa meira →

Ný grein um Rónardalinn

08.19.2009

Það hefur farið lítið fyrir vínsmökkun undanfarna daga, þrátt fyrir að ég sé í fríi þessa viku.  Það er einna helst að góðvinur minn Ramos frá Portúgal fái að laumast í eitt glas á kvöldin.  Vonandi verður gerð einhver bragarbót á því um helgina.  Ég lenti í því um daginn að sláttuvélin mín bilaði en [...]

Lesa meira →

Góður Guigal

02.22.2009

Á föstudaginn eldaði ég ofnbakaðan lax á grænmetisbeði og svepparisotto.  Tókst auðvitað alveg stórkostlega vel og með þessu drukkum við E. Guigal Condrieu 2005 – hreint Viognier líkt og svo mörg önnur hvít rónarvín.  Gullið vín og fallegt í glasi.  Sítrusaldin (einkum greip), eik, smá krydd og steinefnakeimum, fjólur og möndlur – seiðandi ilmur!  Í [...]

Lesa meira →

Kósíkvöld

01.04.2009

Eftir langan vinnudag/vakt er gott að slaka á í faðmi fjölskyldunnar, borða góðan mat og drekka gott vín með. Eftir næturvaktina á nýársdag langaði mig í slíkt kvöld. Ég steikti því vel pipraða nautasteik og gerði rauðvíns-”reduction”. Með þessu drukkum við E. Guigal Crozes-Hermitage 2005. Það er enn ansi ungt, smá sveitakeimur (aðallega hesthús og [...]

Lesa meira →

Guigal-veislan

06.06.2007

Ég komst í fína Guigal-veislu um daginn. Einar Brekkan bauð mér í mat ásamt finnskum kunningja sínum sem er mikill vínsérfræðingur. Þar var m.a. boðið upp á ýmis Guigal vín og aðra eins veislu hef ég ekki komið í síðan Hermann og Hugrún voru í heimsókn (reyndar bara 3 vikur síðan!). Í forrétt var boðið [...]

Lesa meira →