Posts tagged as:

Riesling

Pipar, pipar

Höfundur: Eiríkur Þann 29. desember 2011

Fyrir jól fór ég í tvígang út að borða með vinnufélugunum, og í bæði skiptin fórum við á veitingastaðinn Peppar, Peppar hér í Uppsölum. Staður mun vera nokkuð vinsæll og hefur undanfarin 3 ár verið útnefndur veitingastaðir ársins af lesendum bæjarblaðsins í Uppsölum. Guðrún hefur tvívegis borðað þarna og látið vel af. Ég bar því nokkrar væntingar til staðarins og mér fannst staðurinn standa undir þeim.  Ég fékk reyndar sama mat og vín í bæði skiptin, en í seinna skiptið voru tveir aukaréttir (þ.e. við fengum fullan “avsmaksmeny”, þ.e. fjölréttamatseðil).  Fyrst fengum við laxaterrín, því næst graskers- og trufflusveppasúpu með andaconfite, þá smjörsteiktan vatnaviðni (gös á sænsku), hreindýrasteik og að lokum perur með After Eight-frauði (laxinn og vatnaviðninn fékk ég bara í seinna skiptið).

Með fiskinum og súpunni drukkum við Turkheim Alsace Riesling Reserva 2009, dæmigerður þurr riesling með apríkósum og hunangi, en með hreindýrinu drukkum við Moebius Tempranillo 2007 frá Argentínu, þægilegt matarvín með krydduðu berjabragði og ágætisfyllingu.  Bæði vínin fá 7,5 í einkunn hjá mér.

Ég tel óhætt að mæla með Peppar Peppar og hlakka til að koma þangað aftur.

{ 0 comments }

Helgarfrí

Höfundur: Eiríkur Þann 9. júlí 2011

Nú er ég kominn í helgarfrí og það styttist í sumarfrí – aðeins tvær vikur eftir!  Helginni var fagnað í gær með grilli og tilheyrandi – grilluð svínarif með grillsósunni minni og öðru meðlæti, namm!  Með þessu drukkum við Seghesio Zinfandel 2009 og það verður að segjast eins og er, að þó að vínið hafi verið firna gott þá passaði það auðvitað engan veginn með svona mat en naut sín miklu betur eftirá.  Þessi árgangur er ekki alveg jafn góður og hið magnaða 2007 en engu að síður mjög gott vín – Einkunn: 8,5 – Góð Kaup!

Ég opnaði líka Dr. Loosen riesling 2010, létt og þægilegt vín eins og þýsk riesling eiga að vera, kannski aðeins of grösugt í bragði en engu að síður góð kaup (kostar aðeins um 70 SEK).  Það passaði a.m.k. vel með eftirréttinum sem voru ber með vanillurjóma.

{ 1 comment }

Sushi, afmæli og heimsóknir

01.31.2010

Síðastliðin vika var frekar róleg hjá okkur. Guðfinna Ósk átti afmæli í gær og vikan fór að nokkru leyti í það að undirbúa veisluna. Von var á 15 gestum og eftirvæntingin mikil. Því miður þurfti þó að aflýsa heimsókninni á síðustu stundu þar sem ælupest skaut upp kollinum. Það breytti þó ekki því að við [...]

Lesa meira →

Alsace

01.16.2010

Árið 2007 var einstaklega gott í hinu franska Alsace, líkt og nánast allur síðasti áratugur, og árgangurinn einn sá besti í tæp 20 ár.  Vínframleiðendur höfðu þó áhyggjur um vorið, því það var eitt hið heitasta og þurrasta i áraraðir.  Hlýindin héldu áfram um sumarið, en með hæfilegri úrkomu svo að vaxtarskilyrði voru eins og [...]

Lesa meira →

Vín ársins!

01.10.2010

Jæja, þá er komið að því að útnefna vín ársins 2009.  Nokkuð mörg vín komu til álita að þessu sinni, flest þeirra í ódýrari kantinum, enda árið 2009 sannkallað kreppuár hjá neytendum en góðæri hjá mörgum framleiðendum sem hingað til hafa einkum framleitt vín í ódýrari kantinum. Amalaya de Colomé 2007 kemur frá Calchaqui-dalnum í [...]

Lesa meira →

Kvöldið góða

03.28.2009

Í gær buðum við Evu (deildarstjóranum hennar Guðrúnar) og manninum hennar í mat.  Líkt og venja er þegar við bjóðum svíum í mat (a.m.k. þegar þeir koma í fyrsta skipti) þá buðum við upp á íslenskt lambakjöt.  Á undan bauð ég upp á s.k. “minisnäckor” (litlir smjördeigssnúðar með kalkúnakjötsfyllingu) og með því drukkum við Montes [...]

Lesa meira →

Bestu kaupin í Ríkinu ?

03.13.2009

Eftir að hafa skoðað vínlistann hjá ÁTVR (sjá síðasta pistil) dundaði ég mér líka við að reikna út einhvers konar Q/P-hlutfall, þ.e. gæði/verð sem má útleggja svona: Hvað kostar hver punktur?  Það er ágætis samanburðaraðferð en það gefur auga leið að dýrustu (og bestu?) vínin koma alltaf verst út úr slíkum aðferðum og því þyrfti [...]

Lesa meira →

Vín og ostar á Valentínusardegi?

02.12.2009

Margir vilja gera sér dagamun á Valentínusardegi, degi elskenda.  Með góðum mat skal að sjálfsögðu fylgja gott vín, en hvað um eftirréttinn?  Hvað um vín og osta?  Jú, auðvitað er alltaf gott að fá sér vín og osta, en þá skiptir líka máli að velja saman vínin og ostana, ekki bara að kaupa nokkra góða [...]

Lesa meira →

Jólavínin

12.31.2008

Í ár brugðum við út af venjunni með jólamatinn okkar.  Við vorum orðin þreytt á þungum og reyktum jólamatnum og vildum prófa eitthvað annað.  Niðurstaðan varð kalkúni sem lagður var í kryddaðan saltpækil og tókst alveg frábærlega vel.  Forrétturinn var risahörpuskel með balsamvinaigrette að hætti Gutta.  Mamma og pabbi hafa verið hjá okkur yfir jólin [...]

Lesa meira →

Vín ársins

11.12.2008

Wine Spectator er nú byrjað að birta vínin á topp 10 á hinum árlega lista sínum yfir 100 bestu vín ársins.  Nú hafa verið birt hvaða vín lentu í sætum 7-10. Í 10. sæti er Seghesio Zinfandel Sonoma County 2007, 93p/24$. Í 9. sæti er Mollydooker Shiraz McLaren Vale Carnival of Love 2007, 95p/90$. Í [...]

Lesa meira →