Posts tagged as:

Rioja

Rifjaveislan

by Eiríkur on 5. maí 2010

Um síðustu helgi langaði okkur í rifjasteik. Svona alvöru steik sem er mjúk og safarík, en samt svo vel elduð að það nægir að hrista steikna pínulítið, þá skilja beinin sig frá kjötinu! Ég keypti því fullt af svínarifjum sem ég henti inn í ofn í nokkra klukkutíma. Svo bjó ég til gómsæta grillsósu til að bera fram með rifjunum. Sósan er reyndar samkvæmt uppskrift í Grillbók Hagkaupa en ég ákvað síðar um kvöldið að verkefni sumarsins verður að þróa mína eigin grillsósu.

Keizarinn og Dr. Leifsson mættu í mat ásamt spúsum sínum og voru bara nokkuð ánægðir með veitingarnar.  Með rifjunum drukkum við Montecillo Rioja Crianza 2006 sem var bara nokkuð gott.  Sólber, pipar, smá leður og óvenjumikill eikarkeimur reyndar fyrir Crianzavín.  Létt tannískt, góð fylling og þétt eftirbragð.  Einkunn: 7,5 – Góð Kaup!

{ 0 comments }

Í Stokkhólmi

by Eiríkur on 29. mars 2010

Tengdó eru í heimsókn hjá okkur um þessar mundir og við gripum tækifærið að hafa barnapössun!

Um helgina brugðum við undir okkur betri fætinum og skruppum til Stokkhólms að hitta Hugrúnu og Hermann sem voru þar stödd í helgarferð.  Við röltum um gamla bæinn og brugðum okkur inn á veitingahúsið Mårten Trotzig þar sem við snæddum mjög góðan hádegisverð – lambakjöt, entrecote og villibráðarkjötbollur.  Með þessu drukkum við flösku af Becquer Rioja 2005, prýðisgott rauðvín með mjúkum eikar- og pipartónum.

Um kvöldið ætluðum við að fá okkur eitt glas á Prime Winebar en þar var allt uppbókað svo að ekkert varð af þeirri heimsókn.  Við héldum því á Sturehof, veitingahús við hið margfræga Stureplan, sem mér skilst að sé miðpunkturinn í skemmtanalífi Stokkhólms (ef svo er eiga þeir ýmislegt ólært af miðbæ Reykjavíkur!).  Sturehof er frekar trendý veitingastaður sem leggur áherslu á fisk og skelfisk, en er einnig með fínan vínlista.  Vínið sem mælt var með þetta kvöld var Joseph Phelps Cabernet Sauvignon 2005, hvorki meira né minna, og fyrir ekki meiri pening en 750 SEK per flösku.  Það leiddi nánast til þess að maturinn var valinn út frá víninu!  Í forrétt fékk ég mér andalifrarterrine en hin fengu sér hörpuskel.  Forrétturinn var mjög góður og gaf fögur fyrirheit um það sem koma skyldi.  Aðalrétturinn var unglamb með var borin fram með m.a. einhvers konar lambapylsu og kartöflum.  Lambið og pylsan voru hins vegar brimsölt!  Við höfðum orð á því við þjóninn og það var eins og við manninn mælt – hann lét varla sjá sig það sem eftir lifði kvöldins!  Hann reyndi undir lokin að selja okkur eftirrétt en okkur fannst vera nóg komið og héldum okkar leið.  Rauðvínið var hins vegar firnagott!!!  Við fengum okkur Creme Brulé á nálægri krá og héldum síðan á rölt um bæinn að prófa bjór og annað gott…

Niðurstaðan af þessu rölti okkar var sú að ég get eindregið mælt með veitingastaðnum Mårten Trotzig, en það verður bið á því að ég fari aftur á Sturehof.

{ 0 comments }

Enn eitt góðærið á Spáni

01.15.2010

Undanfarin ár hafa verið góð fyrir spænska vínframleiðendur sem og unnendur spænskra vína.  Nánast allir árgangar síðan árið 2000 hafa verið mjög góðir, einkum í Ribera del Duero og Priorat.  Rioja hefur einnig fengið sín góðu ár, en 2002 var þó nokkuð lakari þar en í hinum héruðunum.  Penedés og Navarra hafa einnig verið nokkuð [...]

Lesa meira →

Þrír vinir og einn gamall kunningi

12.13.2009

Í gær eldaði ég roastbeef á minn hefðbundna hátt (vel kryddaður með svörtum, græn- og rósapipar) og gerði Bernaisesósu með sem mér tókst að eyðileggja á lokasprettinum (missti saltið út í sósuna í bókstaflegri merkingu – kenni auðvitað saltbauknum og salttegundinni um, fer og kaupi nýtt í vikunni!).  Sósan var mjög góð þar til hún [...]

Lesa meira →

Ný grein um Rioja!

01.26.2009

Ég vil vekja athygla á nýrri grein um Rioja-héraðið.  Greinina má finna í listanum yfir síður hér hægra megin á síðunni.

Lesa meira →

Vín með hreindýri

01.22.2009

Guðjón vinur minn hafði samband við mig í gær og leitaði ráða varðandi val á víni með hreindýrasteik.  Hann og Dóri vinur hans ætla að bjóða konunum sínum upp á þríréttaða veislumáltíð og eftir að hafa heyrt matseðilinn fékk ég sko vatn í munninn.  Meðal annars ætla þeir að elda hreindýrasteik og með slíku lostæti [...]

Lesa meira →

Tveir góðir

01.17.2009

Í gær kíkti Keizarinn inn að vanda og við enduðum á því að opna tvær flöskur.  Með matnum (grillaður kjúklingur) drukkum við Ramón Bilbao Rioja Crianza 2005. Næst-bestu kaupin í vínbúðinni minni!  Á eftir opnuðum við svo Ventisquero Queullat Carmeniere Maipo Valley Gran Reserva 2005. Það eru einmitt bestu kaupin í vínbúðinni minni!  Tvö ódýr [...]

Lesa meira →

Coto de Imaz Gran Reserva 1996

01.12.2009

Á laugardaginn opnuðum við Coto de Imaz Gran Reserva 1996, sem ég fékk á sínum tíma frá Keizaranum. Líkt og önnur Riojavín er þetta hreint Tempranillo og eins og reglurnar kveða á um Gran Reserva þá var vínið 2 ár í tunnum og 3 ár á flösku áður en það var sett í sölu.
Vínið [...]

Lesa meira →

Kaup ársins

12.31.2008

Þegar kemur að því að velja bestu kaup ársins eru mörg vín sem koma til greina.
Bodegas Ramón Bilbao Rioja Crianza 2005 er magnað Riojavín sem kostar aðeins 70 sænskar krónur.  Því miður ekki fáanlegt á Íslandi en engu að ein bestu kaup ársins.

Guigal Côtes du Rhone 2004 er alltaf pottþét að eiga og gengur vel [...]

Lesa meira →

Athuganir síðustu viku

11.02.2008

Sænsk-Íslenski vínklúbburinn hittist heima hjá mér í vikunni og þemað var að allir komu með eitt vín sem þeir vildu kynna fyrir klúbbnum:
Keizarinn kom með Domaine Dominique Guyon Hautes Cotes de Nuits Les Dames de Vergy 2007.  Ljóst og kornungt Búrgúndarvín með krydduðum sólberja- og sítrónkeim ásamt útihúsakeim.  Tannínsnautt með frekar mikilli sýru, dálitlum sítrónukeim, [...]

Lesa meira →