Höfundur: Eiríkur Þann 5. febrúar 2010
Nú í vikunni kíkti Einar Brekkan við og færði mér eina flösku af Rosemount Sangiovese 2006. Þetta vín er hálfgerður bastarður, en í góðri merkingu þess orðs. Fyrir mér er sangiovese nánast eins ítalskt og hugsast getur, en Rosemount ekta “down under” ástrali. Ég hefði þó alveg getað keypt þá fullyrðingu að þetta væri Chianti, því hér er virkilega gott vín á ferðinni. Unglegt, létt að sjá. Ilmur af fjólum, lakkrís og kryddi. Létt og skemmilegt í munni, líður vel í gegn. Smellpassar með ítölskum mat. Einkunn: 7,5 – Góð Kaup (þarf að sérpanta).
Höfundur: Eiríkur Þann 13. apríl 2009
Í gær elduðum við lambahrygg á gamla mátann – einföld kryddun og hryggurinn eldaður lengi við lágan hita. Til að fullkomna nostalgíuna þá höfðum við brúnaðar kartöflur, grænar baunir og rauðkál með hryggnum! Með þessu drukkum við Joseph Drouhin Vosne Romanee 2006. Klassískur búrgúndari með kirsuberjum, myntu, pipar og dálitlum eikartónum. Silkimjúkt, í góðu jafnvægi og með langt og gott eftirbragð. Nánast eins og það væri hannað til að drekka með íslensku lambakjöti!
Keizarinn átti afmæli á laugardaginn og bauð okkur í mat. Á eftir ætluðum við að drekka Rosemount GSM 2003 en flaskan reyndist vera ónýt, þannig að ég bauð honum upp á aðra flösku í gærkvöldi og hún var eins og GSM á að vera – ávaxtaríkt og kryddað, góð fylling og þétt eftirbragð.
