by Eiríkur on 5. febrúar 2010
Nú í vikunni kíkti Einar Brekkan við og færði mér eina flösku af Rosemount Sangiovese 2006. Þetta vín er hálfgerður bastarður, en í góðri merkingu þess orðs. Fyrir mér er sangiovese nánast eins ítalskt og hugsast getur, en Rosemount ekta “down under” ástrali. Ég hefði þó alveg getað keypt þá fullyrðingu að þetta væri Chianti, því hér er virkilega gott vín á ferðinni. Unglegt, létt að sjá. Ilmur af fjólum, lakkrís og kryddi. Létt og skemmilegt í munni, líður vel í gegn. Smellpassar með ítölskum mat. Einkunn: 7,5 – Góð Kaup (þarf að sérpanta).
by Eiríkur on 17. janúar 2010
Síðastliðna viku hef ég nánast verið rúmliggjandi með þursabit en er nú allur á batavegi. Ég reyndi að nota tímann í eitthvað gagnlegt og kannaði m.a. stöðuna á sérpöntunarlistanum hjá systembolaget. Nánar tiltekið var ég að athuga hvort að Brancaia Tre 2007 væri ekki örugglega komið til innflytjandans, Johan Lidby Vinhandel. Þetta vín lenti nefnilega í 10. sæti á margnefndum topp 100-lista Wine Spectator og var eitt af fáum vínum sem var fáanlegt í Svíþjóð. Samkvæmt systembolaget voru þeir þó enn með 2006-árganginn en á heimasíðu innflytjandans mátti þá lesa sem svo að 2007 væri komið í þeirra hillur. Núna sagði systemið að 2007 væri fáanlegt þannig að ég ákvað að panta 4 flöskur, sem komu svo í hús á föstudag. Þetta er ítalskt vín, nánar tiltekið Toscana-vín, og mér fannst því viðeigandi að drekka það með ítölskum mat. Ég eldaði því feiknagott Lasagna og bauð Keizaranum í mat. Við prófuðum svo eina flösku og það er óhætt að segja að við urðum ekki fyrir vonbrigðum! Þetta er nokkuð ljóst vín að sjá, dæmigert Chianti-útlit. Í nefið kemur kaffi- og berjailmur ásamt ögn af lakkrís og blómum. Í munni dálítið tannískt en hins vegar mikil sýra, góð fylling og gott eftirbragð. Frábært vín sem vakti mikla hrifningu meðal allra viðstaddra. Vínið er blanda Sangiovese (80%), Cabernet Sauvignon (10%) og Merlot (10%), fellur undir IGT-flokkinn og gæti því tæknilega talist vera ofur-Toskani. Einkunn: 9,0 – Frábær Kaup!

Ég stóðst ekki mátið og pantaði mér strax einn kassa til viðbótar, enda kostar vínið ekki nema 149 SEK og viðbúið að það klárist fljótt!