Posts tagged as:

Sangiovese

Tenute Marchesi Antinori Chianti Classico Riserva 1999

03.01.2002

Vínið er blandað úr 90% Sangiovese og 10% Cabernet Sauvignon og öðrum rauðum þrúgum sem valdar eru af Santa Cristina, Peppoli og Badia a Passignano vínekrum á Mercatele Val di Pesa svæðinu í Chianti Classico, en það eru bestu vínekrur Antinori-fyrirtækisins. Fallega rautt vín, þokkaleg dýpt en er ennþá með rönd æskunnar. Indæl angan af [...]

Lesa meira →

Tenute Marchesi Antinori Chianti Classico Riserva 1997

03.01.2001

Vín mánaðarins í mars 2001 heitir því langa nafni Tenute Marchesi Antinori Chianti Classico DOCG Riserva 1997 og kemur frá sjálfum Marchesi Antinori. Vínið er blandað úr 90% Sangiovese og 10% Cabernet Sauvignon og öðrum rauðum þrúgum sem valdar eru af Santa Cristina, Peppoli og Badia a Passignano vínekrum á Mercatele Val di Pesa svæðinu [...]

Lesa meira →

Isole e Olena Cepparello 1996

03.01.2001

Fallega djúprautt vín, unglegt en mikil dýpt. Í nefinu eik, pipar (piparbrjóstsykur), lakkrís, leður og rósir. Mikil en mjúk tannín, hæfileg sýra, mjög gott jafnvægi. Mikil fylling og langt, langt, langt berjaríkt eftirbragð! Ótrúlegur bolti af Sangiovese að vera. Tímaritið WineSpectator gefur 1996 árgangnum einkunnina 90 og þessa umsögn: “Extremely grapey, with highlights of raspberries [...]

Lesa meira →

Villa Antinori Chianti Classico Riserva 1998

02.01.2001

Fallegur litur, góð dýpt, smá taumar og byrjandi þroski. Í nefi möndlur, kirsuber, útihús og leður. Tannín, ekki mikið jafnvægi, þægilegt vín, ekta Ítali. Umsögn Vínklúbbsins

Lesa meira →

Tenute Marchesi Antinori Chianti Classico Riserva 1998

01.01.2001

Nútímalegt Chianti-vín þar sem 10% af Cabernet Sauvignon hefur verið blandað saman við Sangiovese. Yndislegur topp-Chianti úr góðum árgangi. Þurr, beiskur ávöxtur, ilmur af píputóbaki og þurrkuðum kryddjurtum. Í munni stórt og langt, með stífri uppbyggingu. Á mörg ár eftir. Hörku matarvín. Einkunn: 17/20 Umsögn Steingríms Sigurgeirssonar

Lesa meira →

Barone Ricasoli Chianti Classico Brolio 1997.

01.01.2001

Þetta vín sýnir byrjandi þroska og sæmilega dýpt. Í lyktinni eru mynta, pipar og vínber, og myntan magnast upp við þyrlun. Bragðið einkennist af vínberjum, smá lakkrís, stömum tannínum. Sýra aðeins yfir meðallagi. Batnar sjálfsagt með 3-4 ára geymslu. Passar vel við ítalskan mat, s.s. pizzu, pasta og einnig ýmsa osta. Tímaritið WineSpectator gefur 1997 [...]

Lesa meira →