Posts tagged as:

Sauvignon Blanc

Villibráðarveisla veðurfræðingsins

Höfundur: Eiríkur Þann 16. júlí 2010

Um síðustu helgi vorum við boðin í villibráðarveislu í saumaklúbbnum hennar Guðrúnar.  Óli veðurfræðingur sá um kjötið – grillað hreindýr og gæs – og ég verð að segja að betri villibráð hef ég varla fengið!  Kjötið var svo meyrt að maður hefði nánast getað borðað það með skeið!  Kristó var maðurinn á bak við skötuselinn sem var marineraður og grillaður á teini.  Nonni kom með grænfóðrið og það kom allt úr garðinum hans uppi á Skaga.  Kalli sá um eftirréttinn og Doddi lagði til húsnæði.  Ég kom með vínið og bauð upp á Montes Alpha Cabernet Sauvignon 2007 og Beringer Napa Valley Sauvignon Blanc 2007.  Montes Alpha var ávaxtaríkt (sólber og kirsuber), sæmilega tannískt með mjúkri eik, frísklegt og féll vel að grillaðri villibráðinni.  Einkunn: 7,5 – Góð Kaup! Beringer var frísklegur með góðum sítrus- og ananaskeim.  Ágætis fylling og gott eftirbragð.  Smellpassaði við skötuselinn.  Einkunn: 7,5 – Góð Kaup!

Af ýmsum ástæðum náðum við ekki að heimsækja alla þá sem við ætluðum að heimsækja í þessari Íslandsheimsókn og allir þeir sem eiga í hlut eru beðnir velvirðingar á því – við bætum úr því næst!

Nú er ég kominn heim í hitabylgjuna og tekinn til við nýjungina sem ég tók upp á í fyrra – bjórsmökkun!  Ég er búinn að kaupa ýmsar nýjar tegundir, þar á meðal ýmislegt sem mér myndi annars aldrei detta í hug að prófa.  Nánar um það síðar.

{ 0 comments }

Sushi og Pouilly-Fumé

Höfundur: Eiríkur Þann 6. febrúar 2010

Í gær fengum við okkur sushi og með því prófuðum við Fournier Pouilly-Fumé 2008.  Þetta vín er (eins og önnur P-F) frá Loire í Frakklandi og gert úr Sauvignon Blanc.  Það er ljósgult, unglegt að sjá.  Í nefið koma sítrusávextir og stikilsber, ásamt vott af eik.  Í munni er það frekar þurrt, sæmileg fylling og þokkalegt eftirbragð.  Einkunn: 7,0. Passaði samt ekki alveg nógu vel við sushið, en við vorum meira á því að það hefði verið sushið sem var ekki nógu gott – sennilega hafa þeim verið eitthvað mislagðar hendur kokkunum.

{ 0 comments }

Þrír vinir og einn gamall kunningi

12.13.2009

Í gær eldaði ég roastbeef á minn hefðbundna hátt (vel kryddaður með svörtum, græn- og rósapipar) og gerði Bernaisesósu með sem mér tókst að eyðileggja á lokasprettinum (missti saltið út í sósuna í bókstaflegri merkingu – kenni auðvitað saltbauknum og salttegundinni um, fer og kaupi nýtt í vikunni!).  Sósan var mjög góð þar til hún [...]

Lesa meira →

Topp 100: Sæti 6 – 10

11.18.2009

Hér eru vínin sem lentu í sætum 6 – 10 á topp-100 lista Wine Spectator: 6. Chappellet Cabernet Sauvignon Napa Valley Signature 2006 (Bandaríkin, Kalifornía) – 94 punktar ($42) – “Assertive herb, anise, blackberry and wild berry fruit is tight, firm, tannic and well-structured, picking up depth and length on the finish. Best from 2010 [...]

Lesa meira →

Prestavín

08.29.2009

Í gær kom ég heim frá Falun og okkur langaði í eitthvað gott að borða.  Fyrst vorum við að spá í að grilla en nenntum því eiginlega ekki og enduðum á því að fá okkur Sushi.  Með því drukkum við Saint Clair Vickar’s Choice Sauvignon Blanc 2008.  nafnið mun vera dregið af því að prestlærður [...]

Lesa meira →

Sumarhátíðin

06.28.2009

Í fyrradag fögnuðum við því að vera komin í sumarfrí.  Lambalærið var sett á grillið og á meðan það var að steikjast opnuðum við Montes Sauvignon Blanc 2007 og gæddum við okkur á grilluðum humri.  Með lambinu drukkum við Les Tourelles de Longueville 2005.  Þetta er “litla” vínið frá Chateau Pichon de Longueville í Pauillac, [...]

Lesa meira →

Fish Market

06.25.2009

Fyrir rúmri viku fórum við á veitingastaðinn Fish Market við Aðalstræti.  Með í för voru Brekkan-hjónin ásamt nokkrum svíum, alls 11 manna hópur.  Við höfðum sammælst um að taka hópmatseðilinn, sem er s.k. tasting menu (hvað kallast slíkt á íslensku?) með 9 réttum.  Við fengum m.a. svínarif, krabbakjöt, sushi och sashimi, lax, wasabisallat ásamt fleiri [...]

Lesa meira →

Sólguð Inkanna

06.16.2009

Síðastliðið föstudagskvöld var ég veislustjóri í tæplega 500 manna veislu og stóð mig auðvitað með stakri prýði!  Veislan fór fram á Broadway og gestirnir voru að lang stærstum hluta erlendir.  Í forrétt var gestum boðið upp á koníaksbætta humarsúpu sem var bara nokkuð góð.  Aðalrétturinn var lambavöðvi með kryddhjúp (fór reyndar lítið fyrir kryddhjúpnum) og [...]

Lesa meira →

Nautnakvöld

05.23.2009

Í gær bað frúin mig um extra góðan kvöldmat og ég ákvað að skella humri á grillið. Ég hef prófað ýmsar aðferðir við að elda humar, en alltaf finnst mér best aðferðin sem ég lærði á Höfn í Hornafirði fyrir 10 árum. Humarinn er klofinn með góðum hníf alveg niður að kviðnum og humarinn síðan [...]

Lesa meira →

Kvöldið góða

03.28.2009

Í gær buðum við Evu (deildarstjóranum hennar Guðrúnar) og manninum hennar í mat.  Líkt og venja er þegar við bjóðum svíum í mat (a.m.k. þegar þeir koma í fyrsta skipti) þá buðum við upp á íslenskt lambakjöt.  Á undan bauð ég upp á s.k. “minisnäckor” (litlir smjördeigssnúðar með kalkúnakjötsfyllingu) og með því drukkum við Montes [...]

Lesa meira →