Í gær grillaði ég maískólfa og brasilíska nautalund, meðlætið kartöflur, bernaisesósa og salat. Með þessu drukkum við Casa Lapostolle Cuvée Alexandre Pinot Noir 2005. Vínið er frá Casablanca-héraði í Chile og framleiðandinn Casa Lapostolle skaust nýlega upp á stjörnuhimin vínheimsins þegar Casa Lapostolle Clos Apalta 2005 var útnefnt sem vín ársins 2008 hjá Wine Spectator. [...]

