Posts tagged as:

Semillon

Þrír vinir og einn gamall kunningi

by Eiríkur on 13. desember 2009

Í gær eldaði ég roastbeef á minn hefðbundna hátt (vel kryddaður með svörtum, græn- og rósapipar) og gerði Bernaisesósu með sem mér tókst að eyðileggja á lokasprettinum (missti saltið út í sósuna í bókstaflegri merkingu – kenni auðvitað saltbauknum og salttegundinni um, fer og kaupi nýtt í vikunni!).  Sósan var mjög góð þar til hún ofsaltaðist!  Kjötið var líka mjög gott og féll í góðan jarðveg.

Mín Bernaisesósa er nokkurn veginn eins og sósan í Landsliðsbók Hagkaupa – Skalottulaukar, Estragon og hvítvín soðið niður, eggjarauðum hrært út í og að lokum er bráðnu smjöri bætt í.  Hvítvínið sem ég notaði er frá Jacob’s Creek og heitir Three Vines Semillon Sauvignon Blanc Viognier 2008.  Þetta er nokkuð frísklegt vín, nánast glært í glasinu.  Góður ilmur af sítrus, melónum og grænum epplum.  Í munni er það jafn frísklegt og lyktin, ekki mikil fylling en það rennur samt ljúflega niður.  Gott sumarvín.  Einkunn: 6,5 – Góð Kaup (77 SEK).

Með steikinni drukkum við Montecillo Rioja Crianza 2006.  Þetta vín hef ég oft drukkið áður og jafnan góð kaup í því.  Það er dökkrautt að sjá, unglegt en ekki mikil dýpt.  Í nefinu er nokkuð áberandi útihúsalykt, eik og dökkt súkkulaði.  Ég var þó ekki alveg jafn ánægður með vínið þegar ég smakkaði það, því mér fannst sem útihúsalyktin hefði skilað sér fullmikið í bragðið (skemmd flaska?).   Vínið mýktist þó þegar leið á kvöldið og fékk á sig kunnuglegri blæ.  Líklega hefði það haft gott af smá umhellingu (þó það sé eitthvað sem Crianzavín þurfa sjaldnast á að halda).  Einkunn: 6,5.

Nú tekur við vaktavika hjá mér og því væntanlega rólegt hér á síðunni næstu daga.  Þann 23. förum við svo til Íslands…

{ 2 comments }

Að velja vín fyrir brúðkaup

by Eiríkur on 22. maí 2008

Það getur verið þrautin þyngri að velja vín fyrir brúðkaup! Ég stend nú í þessum sporum og er að leita að heppilegum vínum til að bera á borð fyrir gesti í fyrirhuguðu brúðkaupi okkar Guðrúnar nú í sumar. Ég hef velt þessu nokkuð fyrir mér enda mikilvægt að vel takist til. Það er þó margt sem þarf að huga að. Í fyrsta lagi þarf að velja vín sem ætla má að flestum muni líka við. Einnig þarf að taka tillit til pyngjunnar! Það er ekkert gefið mál að gestir okkar hafi sama smekk og við (nema kannski einhverjir meðlimir Vínklúbbsins) og því mikilvægt að vínin höfði til sem flestra. Rauðvínið þarf því að vera nokkuð aðgengilegt – ávaxtaríkt, ekki of tannískt og ekki of þungt. Þannig er líklegast að frönsku vínin séu ekki jafn líkleg til vinsælda og t.d. vín frá Chile eða Ástralíu. Concha y Toro Casillero del Diablo frá Chile er yfirleitt nokkuð traust val, hvort sem maður velur Merlot eða Cabernet Sauvignon. Sunrise kemur þó vart til greina, enda vissar grunnreglur sem þarf að fylgja! Lindemans Bin 50 Shiraz stendur alltaf fyrir sínu, Bin 45 Cabernet Sauvignon gæti einnig komið til álita en því miður er Bin 40 Merlot ekki fáanlegt í Ríkinu. Penfolds Koonunga Hill og Rawson’s Retreat koma einnig til greina, sem og Wolf Blass Eaglehawk Cabernet Sauvignon. Turning Leaf Zinfandel og Cabernet Sauvignon eru líklega einu amerísku vínin sem gætu hlotið náð fyrir augum dómnefndarinnar. Maður gæti þó kannski gerst djarfur og boðið upp á einhvern spánverja, þá einna helst Montecillo Crianza eða jafnvel Ítala, s.s. Planeta La Segreta.

Hvítvínin eru sennilega aðeins einfaldari. Montes Chardonnay, jafnvel Reserve. Peter Lehmann Barossa Riesling, Rosemount Semillon Chardonnay eða Rosemount Chardonnay er líklegust til að verða fyrir valinu.

Freyðivínið er kannski erfiðast af öllu. Auðvitað vill maður helst skála í ekta kampavíni en ég er þó á þeirri skoðun að gott freyðivín getur jafnast á við þokkalegt kampavín og ef það skilur 2500 krónur á milli þá er valið auðveldara. Wolf Blass Red Label Chardonnay Pinot Noir eða Peter Lehmann Pinot Noir Chardonnay Cuvée gætu allt eins komið í staðinn!

Erfitt val, en samt alls ekki leiðinlegt, sérstaklega ekki prófunarferlið!

{ 0 comments }

Sushi og …?

03.08.2007

Við fengum okkur sushi í gær (dauðlangaði í Dominos pizzu en þær fást ekki hér í Uppsölum) og þá fór ég að velta fyrir mér hvað maður ætti eiginlega að drekka með því. Ég hef ekki oft borðað sushi en er þó orðinn verulega hrifinn af því og það kæmi mér ekki á óvart [...]

Lesa meira →

Rosemount Estate Semillon 1998

06.01.2001

Vín mánaðarins í júní 2000 er Semillon árg. 1998 úr Diamond-línunni frá Rosemount Estate í Ástralíu.
Semillon-þrúgan hefur fram til þessa einkum verið notuð til íblöndunar við aðrar ljósar þrúgur og notuð jafnt í þurr hvítvín sem í sæt eftirréttavín. Ásamt Chardonnay er hún ein helsta ljósa þrúgan í Hunter Valley, sem er í Nýja Suður-Wales [...]

Lesa meira →

Lindemans Botrytis Semillon 1989

01.01.2001

Gullbrúnt að sjá með rauðri slikju. Mikill og þéttur ilmur af eðalmyglu, apríkósum og rúsínum sem einnig skila sér vel í munninn ásamt ögn af púðursykri.
Einkunn: 8,0

Lesa meira →