Posts tagged as:

Shiraz

Grilluð Entrecote og vín ársins

by Eiríkur on 21. febrúar 2010

Í gær grillsteikti ég entrecote sem tókst ákaflega vel.  Við keyptum nefnilega fjórðung af nautaskrokki í haust og þetta kjöt er alveg einstaklega gott – mun betra en það sem ég hef verið að kaupa hér úti í búð.  Ég er líka loksins búinn að læra að nota grillpönnuna mína og nýti nú hvert tækifæri sem gefst til að grillsteikja!    Með steikinni drukkum við Peter Lehmann Shiraz 2006, sem ég valdi sem vín ársins 2009.

Í kvöld ætla ég að elda Bolognese og spaghetti – Keizarinn kemur í mat.  Með þessu er ég að hugsa um að taka fram eina Brancaia Tre

{ 0 comments }

Roastbeef og Port Phillip

by Eiríkur on 22. janúar 2010

Þrátt fyrir að það væri bóndadagur í dag þá kom það samt í minn hlut að sjá um matinn í kvöld – ekki það að ég hafi neitt á móti því, enda kann ég vel við mig í eldhúsinu!  Ég eldaði roastbeef með sveppasósu, salati og kartöflum og var bara nokkuð ánægðum með útkomuna (kjötið var kannski aðeins of lengi í ofninum, því eldri dótturinni (sem verður 8 ára eftir viku) fannst kjötið ekki nógu rautt).  Með þessu drukkum við Port Phillip Estate Shiraz 2006, en það kom í kassa sem ég pantaði rétt fyrir jól frá Antipodes wines.  Þetta vín kemur frá Victoria í Ástralíu, nánar tiltekið frá Mornington-skaga nálægt Melbourne.  Vínið fékk að liggja 16 mánuði í tunnum úr franskri eik og það leynir sér ekki, hvorki í lykt né bragði!  Vínið er nokkuð dökkt eins og shiraz á að vera, unglegt með sæmilega dýpt.  Í nefinu er franska eikin mjög áberandi ásamt rósmarín og vott af vanillu og lakkrís.  Í munni finnur maður áfram fyrir eikinni en einnig smá pipar og rósmarín.  Þokkaleg fylling.  Eftirbragðið kryddað og heldur sér þokkalega.  Einkunn: 7,0.

Port Phillip Estate Shiraz 2006

Það bíður mín kassi af Brancaia Tre 2007 í vínbúðinni minni og ég hef hugsað mér að sækja hann á morgun.  Þá verða vínkælarnir mínir komnir í einstaklega gott ástand og hætt við að ég þurfi að fara að leita mér að stærri vínkæli…

{ 0 comments }

Vín ársins!

01.10.2010

Jæja, þá er komið að því að útnefna vín ársins 2009.  Nokkuð mörg vín komu til álita að þessu sinni, flest þeirra í ódýrari kantinum, enda árið 2009 sannkallað kreppuár hjá neytendum en góðæri hjá mörgum framleiðendum sem hingað til hafa einkum framleitt vín í ódýrari kantinum.
Amalaya de Colomé 2007 kemur frá Calchaqui-dalnum í Argetínu, [...]

Lesa meira →

Drífa sig að panta!

11.17.2009

Já, nú er sko að drífa sig að panta réttu vínin áður en topp-100 listinn verður gerður opinber.  Ég pantaði mér einu flöskuna sem fáanleg var í Svíþjóð af Landmark Syrah Sonoma Valley Steel Plow 2006, sem fékk 94 punkta og endaði í 19. sæti.  Ég reyndi að panta mér einu flöskuna sem átti að [...]

Lesa meira →

Gamall vinur á ferð

07.11.2009

Í gær var hefðbundin íslensk föstudagsmáltíð á borðum hjá okkur (kannski pínu gamaldags en þó klassísk) – grillaður kjúklingur með frönskum, salati og kokteilsósu (sósa og salat segja dætur mínar sem nú eru heillaðar af gömlu Stuðmanna-myndinni “Með allt á hreinu”, einkum laginu “Franskar (sósa og salat)”). Með þessu drukkum við Penfolds Koonunga Hill [...]

Lesa meira →

Bragðlaukaorgían

06.23.2009

Í nýafstaðinni Íslandsheimsókn okkar vorum við boðin í mat til Hugrúnar og Hermanns.  Þau búa á Álftanesinu í námunda við húsbrjótinn alræmda (réttara sagt, hann bjó þarna nálægt).
Það er alltaf gaman að koma heim til Hugrúnar og Hemma.  Þau töfra alltaf fram dásamlega rétti og Hemmi kann sko að velja vín við hæfi!  Að þessu [...]

Lesa meira →

Vín með hreindýri

01.22.2009

Guðjón vinur minn hafði samband við mig í gær og leitaði ráða varðandi val á víni með hreindýrasteik.  Hann og Dóri vinur hans ætla að bjóða konunum sínum upp á þríréttaða veislumáltíð og eftir að hafa heyrt matseðilinn fékk ég sko vatn í munninn.  Meðal annars ætla þeir að elda hreindýrasteik og með slíku lostæti [...]

Lesa meira →

Markus Molitor

09.29.2008

Ég var að leita á netinu hjá Systeminu fyrir helgi og sá þá, mér til mikillar ánægju, að hið frábæra hvítvín Riesling Auslese 2005 frá Markus Molitor var á tilboðsverði, aðeins rúmar 200 krónur sænskar.  Ég pantaði mér auðvitað nokkrar flöskur í snarhasti og nú hvíla þær í vínskápnum mínum og bíða rétta augnabliksins.
Annars opnaði [...]

Lesa meira →

Fantagóður Pinotage

06.29.2008

Það hefur verið frekar rólegt yfir Vínsíðunni síðustu vikur enda mikið að gera hjá ritstjóranum.  Þursabit, pallasmíðar, skjólveggur, bakvakt og síðast en ekki síst – undirbúningur Íslandsferðarinnar.  Vínsmökkun hefur því mátt víkja fyrir öðru en nú er kannski hægt að bæta úr því og fjalla meira um það sem landanum stendur til boða.
Hvað um það [...]

Lesa meira →

Niðursoðin krækiberjasaft?

05.24.2008

Já, það var það sem helst kom upp í hugann í gær þegar við prófuðum bæði Turning Leaf Zinfandel 2006. Reykjarkeimur, krækiberjahrat og fleira óskemmtilegt. Einnig opnuðum við Penfolds Rawson’s Retreat 2006 og ekki varð hrifningin meiri af því. Ungt en líflaust að sjá, óaðlaðandi lykt, beiskt og þurrt vín með óspennandi [...]

Lesa meira →