Posts tagged as:

Skelfiskur

Ítalskt kvöld

Höfundur: Eiríkur Þann 9. apríl 2010

Á morgun er ítalskt kvöld, nánar tiltekið Toscana-kvöld.  Við ætlum að hittast nokkrir vinnufélagar, elda saman góðan mat og drekka góð vín.  Við ætlum að elda Toscana-mat (a.m.k. ítalskan mat) og drekka Toscana-vín.  Einar Brekkan sér um stærstan hluta matseðilsins en ég kem með forrétt og ætla að gera humar- og villisvepparéttinn sem ég gerði um daginn, nema að nú verður hann borinn fram sem pastaréttur.  Ég er búinn að ná mér í íslenskan humar, ítalska villisveppi og búinn að finna Toscana-hvítvín sem ætti að passa vel með (Torricella Chardonnay 2008 frá Barone Ricasoli).  Ég er líka að spá í að bæta hörpuskel við þetta, en ég var einmitt að fá þessa fínu íslensku risahörpuskel.  Einhverjar skoðanir á þessu?

Annars lenti ég óvænt á bakvakt um helgina og get því lítið lyft mér upp nema á laugardaginn (er laus við vaktina það kvöld).  Systir mín var líka að eignast dóttur í gær og það er auðvitað ærin ástæða til þess að fagna!

{ 0 comments }

Jólavínin

Höfundur: Eiríkur Þann 31. desember 2008

Í ár brugðum við út af venjunni með jólamatinn okkar.  Við vorum orðin þreytt á þungum og reyktum jólamatnum og vildum prófa eitthvað annað.  Niðurstaðan varð kalkúni sem lagður var í kryddaðan saltpækil og tókst alveg frábærlega vel.  Forrétturinn var risahörpuskel með balsamvinaigrette að hætti Gutta.  Mamma og pabbi hafa verið hjá okkur yfir jólin og þau komu með Rosemount Show Reserve Chardonnay 2006 og Don Melchor Cabernet Sauvignon Private Reserve 1997.  Þetta drukkum við með jólamatnum og það féll í góðan jarðveg.  Chardonnayið silkimjúkt með sítrus- og eikarkeim og fínni smjöráferð.  Don Melchor einnig pottþéttur – dökkur og seiðandi ilmur af leðri, pipar og berjum, góð fylling, þétt áferð með löngu og góðu eftirbragði. Einar Brekkan renndi við hjá ykkur fyrir jól og færði mér eina Casa Lapostolle Cuvee Alexander Pinot Noir 2005.  Með hangikjötinu á jóladag drukkum við svo eina Dr. Loosen Riesling Spätlese 2006.

Áramótauppgjörið er framundan- bestu kaup ársins, vonbrigði ársins og að sjálfsögðu vín ársins!

{ 0 comments }

Jordan, mmm…!

06.21.2007

Á morgun liggur leiðin til Ítalíu og við ákváðum að taka því rólega í kvöld, keyptum dálítið sushi til að borða sem kvöldsnakk og þá er ómissandi að fá sér hvítvín með. Fór því í systemið (sænska Ríkið) og rakst á Jordan Stellenbosch Chardonnay 2006. Ég hef aldrei smakkað það áður en hef prófað Jordan [...]

Lesa meira →

Góð þrenna

02.26.2007

Við vorum með matarboð um helgina, buðum Einari og Árdísi Brekkan í mat. Í forrétt höfðum við risarækjur með ávaxtasalsa og með því drukkum við Kloster Eberbach Riesling Spätlese 2006 frá Rheingau í Þýskalandi. Hálfþurrt vín með góðum ávaxtakeim (aðallega perur með smá hunangi), frísklegt með góðum sítruskeim. Í aðalrétt höfðum við fyllt lambalæri og [...]

Lesa meira →

Concha y Toro Amelia Chardonnay 2001

11.19.2006

Fallega gullinn litur, með vott af grænni slikju. Peruangan og ilmur af ristuðu brauði mætir manni í fyrstu. Frekari ávaxtatónar aðskiljast og minntu á þurrkaða banana og græn epli. Einnig var vottur af vanillu og kryddi sem kveiktu hugmyndir um saffran. Vín í gríðarlega góðu jafnvægi, meðalþurrt, vel smurt og áferðarmjúkt með þægilegu eftirbragði. Perur [...]

Lesa meira →

Rosemount Estate Semillon 1998

06.01.2001

Vín mánaðarins í júní 2000 er Semillon árg. 1998 úr Diamond-línunni frá Rosemount Estate í Ástralíu. Semillon-þrúgan hefur fram til þessa einkum verið notuð til íblöndunar við aðrar ljósar þrúgur og notuð jafnt í þurr hvítvín sem í sæt eftirréttavín. Ásamt Chardonnay er hún ein helsta ljósa þrúgan í Hunter Valley, sem er í Nýja [...]

Lesa meira →