Posts tagged as:

Smakkarinn.is

Kreppuvín

Höfundur: Eiríkur Þann 30. maí 2009

Í janúar skrifaði ég pistil um kreppuvín með kreppubolta. Mér fannst þetta frekar sniðugt hugtak en bjóst samt ekki við að það myndi ná að festast jafn vel í sessi og það virðist hafa gert.

Ég kíki nefnilega reglulega inn á önnur vínblogg, einkum www.smakkarinn.is og vinogmatur.wordpress.com, sem ásamt Vínsíðunni eru virkustu íslensku vínbloggin.  Stefán Guðjónsson, sem ritstýrir Smakkaranum er vínþjónn og tvímælalaust einn fremsti vínsérfræðingur Íslands.  Á bak við hitt vínbloggið er Vín og matur, sem er lítið fyrirtæki sem flytur inn vín á borð við d’Arenberg, Sine Qua Non og Umano Ronchi.  Við lestur þessara vínblogga hef ég tekið eftir því að þau eru líka farin að tala um kreppuvín, og Stefán er meira að segja með síðu tileinkuðum kreppuvínum.  Nýlega fjallaði hann um þrjú vín frá Arthur Metz, þar af einn Gewurztraminer sem hann valdi sem vín mánaðarins, en einnig Riesling og Pinot gris sem hann kallar kreppuvín.

Skilgreining mín á kreppuvínum eru góð og ódýr vín sem maður hefði kannski litið fram hjá á velmegunarárum (það er kannski hálf  kjánalegt að hugsa svona, en samt…).

Ég ætla að kíkja í vínbúðina mína á eftir og finna mér tvö góð kreppuvín, hvítt og rautt, finna svo eitthvað gott á grillið því það er spáð allt að 30 stiga hita um helgina!

{ 2 comments }

Er hægt að blanda vínáhuga og heilsurækt saman?

Höfundur: Eiríkur Þann 9. febrúar 2009

Svo spyr Stefán Guðjónsson á smakkarinn.is.  Gefum honum orðið:

Eftir margra ára baráttu við aukakílóin var ég orðinn leiður á því að annaðhvort svelta mig í hel á einhvers konar megrunar kúr eða æfa eins og skepna bara til að missa nokkur kíló sem komu jafn fljótt til baka, ákvað ég að fara mína eigin leið til að grennast. Stóra spurningin var hvernig var hægt að grennast án þess að þurfa að hætta vínsmökkun sem er einnig stór hluti af minni atvinnu?..

Lestu meira á www.smakkarinn.is

{ 0 comments }

Smakkarinn.is velur vín ársins

01.14.2009

Stefán Guðjónsson á smakkarinn.is er einn af helstu vínsérfræðingum Íslands og hann hefur tilnefnt vín ársins 2008 – Chateau Lagrange 2004: Þá er komið að besta víninu sem ég smakkaði árið 2008! Vínið kemur frá einu besta ef ekki besta og þekktasta  vínræktar svæði heims, Bordeaux. Þeir sem þekkja mig vita að ég lít ekki [...]

Lesa meira →

Góð grein hjá Stefáni smakkara

09.09.2008

Stefán Guðjónsson vínþjónn og ritstjóri smakkarinn.is er búinn að taka saman stutta lýsingu á helstu þrúgunum, bragði og eiginleikum þeirra en umfram allt tilgreinir hann hvaða matur hentar hvaða þrúgu.  Fín samantekt hjá Stefáni – kíkið á greinina hérna.

Lesa meira →

Vídeósmakk?

06.03.2008

Ég leit inn á Smakkarinn.is í morgon og sá að Stefán mælir með áhugaverðu þýsku freyðivíni, Sander Riesling Trocken freyðivín 2005, sem víni mánaðarins í apríl 2008. Það er athyglisvert, ekki minnst fyrir þær sakir að Stefán segist almennt ekki vera hrifinn af þýskum freyðivínum (finnst þau meira að segja vond!).  Það sem mér þótti [...]

Lesa meira →