Posts tagged as:

Suður-Afríka

Árshátíðir vínklúbbanna

Höfundur: Eiríkur Þann 21. maí 2011

Post image for Árshátíðir vínklúbbanna

Það hefur verið frekar hljótt hér á Vínsíðunni að undanförnu og er þar ýmsu um að kenna.  Ég hef verið önnum kafinn í vinnunni, verið á dálitlu flandri í tengslum við það og einnig verið upptekinn við að koma frá mér vísindagrein.  Nú hefur heldur róast á þessu sviði og því hægt að halda áfram með vínrannsóknir!  Mamma og pabbi hafa verið í heimsókn hjá okkur undanfarna viku og þau komu með Muga Rioja Reserva 2006, ákaflega gott Riojavín sem smellpassaði með nautasteikinni.  Góður eikar- og leðurkeimur, smá vanilla og tóbak.  Einkunn: 8,5 – Góð Kaup!

Einar Brekkan gaf mér flösku af Kyburg Cabernet Sauvignon 2008.  Þetta vín er frá Stellenbosch-héraðinu í Suður-Afríku, lítill framleiðandi sem framleiðir einnig Merlot, Shiraz og svo blöndu af þessum þrúgum.  Framleiðslan er aðeins nokkur þúsund kassar og mér hefur ekki tekist að finna neina umsögn um þessi vín hjá neinum af hinum þekktari víngagnrýnendum.  Vínið er með góðan eikar- og tóbakskeim með smá súkkulaðitónum.  Gott vín sem passaði vel með kálfa-entrecote.  Einkunn: 8,5 – Góð Kaup.

Vínklúbburinn íslenski hélt árshátíð sína um síðustu helgi og að þessu sinni var þemað surf’n'turf.  Veislan mun að vanda hafa tekist til vel og mig er farið að langa verulega mikið að komast í þessa veislu enda nokkuð mörg ár síðan ég tók síðast þátt.  Litli vínklúbburinn í Uppsölum mun halda sína árshátíð um næstu helgi og þemað verður ítalskt, bæði hvað varðar mat og vín.  Þetta verður góð upphitun fyrir úrslitaleikinn í Meistaradeildinni, verst að það er fyrirfram ákveðið hverjir eigi að vinna í ár (sorrý Smári og Dr. Leifsson).

{ 0 comments }

Páskafrí – enn eitt húsvínið!

Höfundur: Eiríkur Þann 22. apríl 2011

Þá er ég loksins kominn í páskafrí eftir langa og stranga vinnutörn.  Það spáir sól og tuttugu stiga hita hérna hjá okkur og ljóst að grillið verður vel kynt um helgina!  Ég tók mig til og keypti húsvín um daginn, og þar sem ég gat ekki alveg gert upp á milli Bolgarello og Campo Viejo þá keypti ég bæði vínin!  Mér fannst reyndar að ég þyrfti einnig að hafa hvítt húsvín en hafði reyndar ekkert kannað það nánar.  Ég fékk Wine Spectator í hús í vikunni og þar var girnileg uppskrift að grænum aspas og mælt með að drekka Grüner Veltliner með því.  Mér finnst Grüner Veltliner almennt vera nokkuð góð þannig að ég ákvað að fá mér eina svoleiðis.  Fyrir valinu varð vín frá hinum austrríska Leth.  Vínið kostaði aðeins 75 SEK og það er óhætt að segja að það eru feiknagóð kaup í þessu víni!  Ljósgult og fallegt vín með frískum keim af grænum eplum, lime og smá kiwi - smellpassar með grilluðum aspas!  Sænska tímiritið Allt om Vin gefur víninu 4 stjörnur af 5 og segir þetta vera hin bestu kaup, og ég get ekki annað en verið sammála þeim að þessu sinni.  Þó ég hafi ekki prófað aðra kandidata í hvíta húsvínið þá er líklegt að þetta vín verði fyrir valinu sem fyrsta hvíta húsvínið mitt.

Í gærkvöldi frétti ég svo frá mjög svo áreiðanlegum heimildum að Allesverloren Shiraz sé einstaklega gott núna og það fær kannski að fljóta með…

{ 0 comments }

Liseberg og tvö frábær vín!

08.19.2010

Já, loksins komumst við í Liseberg! Dæturnar völdu nefnilega Liseberg sem sumarleyfisstaðinn í ár og tóku hann fram yfir sólarlandaferð eða annað þvíumlíkt. Við fórum reyndar til Íslands í 3 vikur en það er víst ekki hægt að kalla það sólarlandaferð þrátt fyrir að veðrið hafi verið með ágætum. Við ætluðum svo að fara í [...]

Lesa meira →

Gúrkutíð

08.03.2010

Það hefur verið hálfgerð gúrkutíð hjá mér að undanförnu og lítið um vínprófanir frá því að engillinn góði var tekinn upp.  Ég var að vinna í Falun alla síðustu viku þar sem ég smakkaði reyndar eitt gott rauðvín.  Ég fékk mér glas af Gnarly Head Zinfandel 2008 og það var bara skrambi gott.  Gott berjabragð [...]

Lesa meira →

Heilsusamleg kassavín – eða hvað?

09.12.2009

Það nægir að drekka tvö glös af Chill Out Sunset til að fá í sig meira en æskilegan dagskammt af súlfíði (brennisteinstvíildi eða brennisteinsdíoxíð, sulphur dioxide).  Og hvað með það? Jú, ef þú ert með astma gæti það verið sérstaklega slæmt fyrir þig!  Um 5 % af astmasjúklingum eru sérstaklega næmir fyrir þessu efni  Brennisteinstvíildi [...]

Lesa meira →

Misjöfn uppskera á suðurhvelinu

08.22.2009

Ég er alltaf spenntur að fá fréttir af nýrri vínuppskeru, og eins og venjulega koma fyrstu fréttirnar af suðurhveli jarðar: Argentína – Sumarið var þurrt og heitt, jafnvel of heitt fyrir grænu þrúgurnar en rauðvínin ættu að verða nokkuð góð. Ástralía – Þrátt fyrir mikla hitabylgju í ársbyrjun eru vínbændur í Ástralíu nokkuð bjartsýnir á [...]

Lesa meira →

Sumarfríið búið

07.21.2009

Já, þá er sumarfríið búið – allt of fljótt, fannst mér!  Í síðustu viku fórum við í sumarhús í Orsa ásamt Keizaranum og fjölskyldu hans.  Ég hafði ákveðið að taka eina góða rauðvínsflösku með mér og opna fyrsta kvöldið.  Fyrir valin varð Penfolds St. Henri Shiraz 2004, sem ég keypti í London í fyrra.  Það [...]

Lesa meira →

Lítið um að vera

12.21.2008

Já, það hefur verið lítið um að vera hjá ritstjóra Vínsíðunnar að undanförnu.  Lítill tími til vínrannsókna en þeim mun meira að gera við jólaundirbúninginn.  Ég náði þó að opna Havana Hills Cabernet Sauvignon 2005 í gær.  Suður-Afrískt vín frá framleiðanda sem ég veit ósköp lítið um.  Vínið gekk þó ágætlega með matnum – nautasteik [...]

Lesa meira →

Fantagóður Pinotage

06.29.2008

Það hefur verið frekar rólegt yfir Vínsíðunni síðustu vikur enda mikið að gera hjá ritstjóranum.  Þursabit, pallasmíðar, skjólveggur, bakvakt og síðast en ekki síst – undirbúningur Íslandsferðarinnar.  Vínsmökkun hefur því mátt víkja fyrir öðru en nú er kannski hægt að bæta úr því og fjalla meira um það sem landanum stendur til boða. Hvað um [...]

Lesa meira →

Fyrir næstu innkaupaferð

09.08.2007

Það hefur verið fátt um fína drætti í mínum vínkaupum að undanförnu. Guðrún kom reyndar heim með Torres Mas La Plana og Penfolds Bin 407 í gær, sá síðarnefndi kærkominn gamall vínur sem ekki er fáanlegur hér í sænska systeminu. Mig dauðlangar þó að fara að panta mér eitthvað skemmtilegt og hef því verið í [...]

Lesa meira →