Posts tagged as:

Super-Toscana

Góð uppskera í vikulok

by Eiríkur on 12. febrúar 2010

Þetta er búin að vera ágæt vika.  Ég er reyndar búinn að vera á bakvakt alla vikuna en er núna kominn í helgarfrí.  Þetta var róleg vika, lítið um hringingar og til að bæta um betur vann Arsenal leikinn gegn Liverpool, Man U gerði jafntefli og Chelsea tapaði.  Sem sagt mjög góð vika.  Það var því eiginlega vel við hæfi að ég skyldi rekast á flösku af Isole e Olena Cepparello 2006 í vínbúðinni minni í dag!  Þetta vín hefur nefnilega ákveðinn goðsagnastatus hjá mér.  Í einu af fyrstu eintökunum af Wine Spectator sem ég sá var einmitt fjallað um þetta vín, nánar tiltekið 1997-árganginn sem var sá besti í sögu þessa víns (og líka einn besti árgangurinnn í sögu Toscana).  Mig hafði því lengi langað í þetta vín og aðeins smakkað eina flösku fyrir u.þ.b. 10 árum síðan, en ég fékk reyndar flösku að gjöf frá Palla frænda þegar hann var veislustjóri í brúðkaupi okkar Guðrúnar og gat því notið þessa víns í fyrra.  Ég var svo sem ekkert að leita mér að neinu tilteknu víni til að fjárfesta í í dag, ætlaði bara að kaupa bjór (Norrlands Guld) og rauðvínsbelju (Beringer Cabernet Sauvignon) en svo sá ég eina Cepparello í hillunni fyrir þau vín sem tímabundið má finna í búðinni (slík vín eru annars aðeins til pöntunar eða seld í einni af þremur “aðalbúðum” systembolagsins).

Annars er ekki mikið á dagskrá þessa helgi.  Valentínusardagur er reyndar á sunnudaginn…

{ 0 comments }

Uppskrift að góðu kvöldi

by Eiríkur on 27. nóvember 2009

Eftir tæplega vikulanga fjarveru frá fjölskyldunni er efst á óskalistanum að eiga notalega kvöldstund í faðmi fjölskyldunnar. Við skruppum út í búð í dag og sáum þar hreindýrasteik sem við ákváðum að skella okkur á. Hún var kannski í dýrari kantinum en samt hverrar krónu virði, enda einstaklega góður biti sem við fengum á. Kjötið var skorið í hæfilega stórar steikur (u.þ.b. 100 g hver) og kryddað með salti, pipar og timjan. Það var síðan steikt upp úr smjöri í rúmar tvær mínútur á hvorri hlið. Í lok steikingar hellti ég smá púrtvíni (Churchill LBV 2002) út á og þannig mallaði kjötið í rúma mínútu. Sósan var gerð úr skógarsveppum, kjötsoði og bökuð upp á pönnunni eftir að kjötið hafði verið tekið af. Meðlætið var steikt grænmeti og kartöflur. Óhætt er að segja að þetta var ákaflega gott og allir borðuðu á sig gat! Þegar maður borðar slíkt lostæti er ekki hægt annað en að drekka eitthvað gott rauðvín með. Ég tók fram eina Tignanello 2006 (93 punktar í Wine Spectator)! Þetta er dökkt og fallegt vín með góða dýpt en auðvitað í það yngsta til að drekka núna. Í nefið koma fram rauð epli, lakkrís, plómur, pipar og dökkt súkkulaði. Í munni er það gríðarlega tannískt þrátt fyrir umhellinguna en hefur samt góða sýru á móti. Plómurnar koma vel fram í bragði og haldast fram í eftirbragðið sem er langt og gott. Frábært vín! Einkunn: 9,0- Góð kaup!

Púrtvínið var líka mjög gott – nokkuð sætur berjakeimur með góða fyllingu.  Dæmigerður Churchill!

lbl_IT_antinori_tignanello

{ 0 comments }

“Opnaðu flöskuna”-kvöld

02.17.2009

Átt þú einhverja sérstaka vínflösku inni í skápnum þínum? Ertu að bíða eftir rétta tækifærinu til þess?
Ef svo er, þá er rétta tækifærið þann 28. febrúar n.k.!
Fyrir rúmum áratug síðan ákváðu vínskríbentar á Wall Strett að gefa vínáhugamönnum tækifæri á að opna flöskuna sem þeir hafa verið að geyma svo lengi en aldrei lagt í [...]

Lesa meira →

Cepparello!

10.16.2008

Já, loksins kom að því að ég smakkaði Cepparello!
Ég hef fylgst með þessu víni s.l. 7-8 ár eftir að hafa lesið umsagnir um hinn frábæra 1997 árgang.  Það þótti hreint stórkostlegt vín, líkt og mörg önnur ofur-Toscanavín þetta árið.  Ekki hefur mér þó tekist að eignast vínið fyrr en ég gifti mig í sumar, þegar [...]

Lesa meira →