Posts tagged as:

Sushi

Sushi og Pouilly-Fumé

by Eiríkur on 6. febrúar 2010

Í gær fengum við okkur sushi og með því prófuðum við Fournier Pouilly-Fumé 2008.  Þetta vín er (eins og önnur P-F) frá Loire í Frakklandi og gert úr Sauvignon Blanc.  Það er ljósgult, unglegt að sjá.  Í nefið koma sítrusávextir og stikilsber, ásamt vott af eik.  Í munni er það frekar þurrt, sæmileg fylling og þokkalegt eftirbragð.  Einkunn: 7,0. Passaði samt ekki alveg nógu vel við sushið, en við vorum meira á því að það hefði verið sushið sem var ekki nógu gott – sennilega hafa þeim verið eitthvað mislagðar hendur kokkunum.

{ 0 comments }

Sushi, afmæli og heimsóknir

by Eiríkur on 31. janúar 2010

Síðastliðin vika var frekar róleg hjá okkur. Guðfinna Ósk átti afmæli í gær og vikan fór að nokkru leyti í það að undirbúa veisluna. Von var á 15 gestum og eftirvæntingin mikil. Því miður þurfti þó að aflýsa heimsókninni á síðustu stundu þar sem ælupest skaut upp kollinum. Það breytti þó ekki því að við áttum ágæta helgi að öðru leyti. Guðjón vinur okkar kom í heimsókn – fyrsta skipti sem hann kemur til Uppsala. Það var því tvöfalt tilefni til að gera sér dagamun.

Guðfinna Ósk hafði óskað eftir nautalund (blóðugri!) í mat á afmælisdaginn sinn, en við ákváðum reyndar að hafa lundina daginn áður, enda líklegt að allir yrðu nokkuð saddir eftir kökuát og því lítið pláss fyrir nautasteik.  Með nautinu bauð ég upp á fondantes kartöflur, villisveppasósu og salat.  Með því drukkum við Tignanello 2005 – stórfenglegt vín að öllu leyti!  Fallega dökkt með mikla dýpt, ilmur af eik, leðri og sólberjum.  Nokkuð tannískt með góða fyllingu og langt og gott eftirbragð.  Einkunn: 9,0 – Góð Kaup! Eftir matinn fengum við okkur súkkulaði og Tommasi Amarone 2005.  Mjög gott amaronevín, dökkt og fallegt í glasi, hnausþykkur ilmur af rúsínum og fjólum.  Góð fylling og eftirbragð sem endist lengi. Einkunn: 8,5 – Góð Kaup!

Eins og áður sagði þurftum við að fresta afmælisveislunni þegar yngri dóttirin fékk ælupest, sem blessunarlega gekk fljótt yfir án þess að nokkur annar hafi veikst (enn sem komið er…).  Við ákváðum því að fá okkur sushi (McDonalds fyrir dæturinar) og með því drukkum við Saint Clair Marlborough Riesling 2008.  Það er ljósgult vín, ilmur af melónum og apríkósum, dálítið þurrt (svona mitt á milli þess að vera þurrt og hálfsætt) og passaði vel með sushinu.  Einkunn: 7,0. Við opnuðum svo að lokum eina Brancaia Tre 2007 - frábært vín sem ég hef áður farið lofsamlegum orðum um hér á Vínsíðunni.

{ 0 comments }

Prestavín

08.29.2009

Í gær kom ég heim frá Falun og okkur langaði í eitthvað gott að borða.  Fyrst vorum við að spá í að grilla en nenntum því eiginlega ekki og enduðum á því að fá okkur Sushi.  Með því drukkum við Saint Clair Vickar’s Choice Sauvignon Blanc 2008.  nafnið mun vera dregið af því að prestlærður [...]

Lesa meira →

Marqués de Riscal Rueda 2007 og Falu-Sushi

03.30.2009

Þessa vikuna er ég staddur í Falun (höfuðstaður Dalanna í Svíþjóð), bý á hóteli sem ekki er með eigin veitingastað og því þarf ég að finna mér eitthvað að borða á hverju kvöldi. Þegar ég var að kaupa mér samloku í hádeginu var verið að kynna sushi á sjúkrahúsinu þannig að ég ákvað að [...]

Lesa meira →

Lítið um að vera

12.21.2008

Já, það hefur verið lítið um að vera hjá ritstjóra Vínsíðunnar að undanförnu.  Lítill tími til vínrannsókna en þeim mun meira að gera við jólaundirbúninginn.  Ég náði þó að opna Havana Hills Cabernet Sauvignon 2005 í gær.  Suður-Afrískt vín frá framleiðanda sem ég veit ósköp lítið um.  Vínið gekk þó ágætlega með matnum – nautasteik [...]

Lesa meira →

Carmen og Sushi

10.25.2008

Í gær var ég þreyttur eftir næturvaktina.  Sá sem var með mér sást í samtals 25 sekúndur á bráðamóttökunni og ég held að það sé met!  Ég var sem sagt einn með bráðamóttökuna (fyrir skurðsviðið) en sem betur fer var rólegt.  Merkilegt hvað það getur verið óskaplega mikið að gera upp í húsi hjá sumum [...]

Lesa meira →

Chateau Ste. Michelle Dry Riesling 2006

04.02.2008

Því miður er úrvalið af amerískum vínum frekar dapurt í vínbúðinni minni og nánast fáheyrt að komst yfir vín frá Washingtonfylki, en nú hefur verið hægt að fá þurran Riesling Chateau Ste. Michelle 2006, en sá framleiðandi hefur lengi verið í uppáhaldi hjá mér. Hér á ferðinni unglegt og skemmtilegt vín með angan af [...]

Lesa meira →

Sushi og Chile

11.09.2007

Í kvöld fengum við okkur (eins og svo oft áður) sushi frá Ayako’s sushi í Uppsölum. Með því prófuðum við Montes Alpha Casablanca Valley Chardonnay 2005. Vínið er í reynslusölu í vínbúðinni “minni” og ég ákvað að slá til. Þetta er hið ágætasta vín. Nokkuð einfaldur eikar- og sítrusilmur sem skilar [...]

Lesa meira →

Um athuganir síðustu vikna

08.10.2007

Já, þó svo að lítið hafi gerst hér á síðunni sl. 3-4 vikur þá hefur eitt og annað vín verið prófað. Tengdó komu í heimsókn og tóku með sér 2 flöskur af Chateau Cantenac Brown 2001 sem er alveg afskaplega gott vín! Sólberin, piparinn og eikin duga vel til að æra bragðlaukana sem [...]

Lesa meira →

Jordan, mmm…!

06.21.2007

Á morgun liggur leiðin til Ítalíu og við ákváðum að taka því rólega í kvöld, keyptum dálítið sushi til að borða sem kvöldsnakk og þá er ómissandi að fá sér hvítvín með. Fór því í systemið (sænska Ríkið) og rakst á Jordan Stellenbosch Chardonnay 2006. Ég hef aldrei smakkað það áður en hef [...]

Lesa meira →