Posts tagged as:

Svínakjöt

Pörusteik á danskan máta og góð ábending

by Eiríkur on 21. október 2009

Á sunnudaginn eldaði ég pörusteik á danskan máta og var bara nokkuð ánægður með útkomuna, enda ekki á hverjum degi að maður fær slíka steik hér í Svíþjóð (þeir eru vanir að fituhreinsa kjötið aðeins of vel!).  Keizarinn mætti í mat ásamt fjölskyldu sinni og ég held að hann hafi farið saddur heim.

Annars hefur verið frekar rólegt hjá mér þessa viku, lítið um rauðvínssmökkun en ég opnaði þó nýja bjórtegund í kvöld, Falcon Ekologisk Special Brew, sem er gerður úr lífrænt ræktuðu byggi.  Ljós lager, ágætlega beisku en stutt eftirbragð.

Í kvöld fékk ég reyndar ábendingu um vín sem ég ætti að prófa, 7 Deadly Zins, sem eins og nafnið bendir til er amerískur Zinfandel og kostar 119 SEK.  Þar sem ábendingin kemur frá nokkuð traustum aðila hugsa ég að ég skelli mér á það um helgina.  Ég er reyndar að fara á disputationsveislu á föstudaginn (einn félagi minn er að ljúka doktorsprófi) og svo koma mamma, pabbi, Unnur systir og Guðmundur sonur hennar í heimsókn á laugardaginn…

{ 0 comments }

Svínarif að hætti hússins

by Eiríkur on 9. september 2009

Síðastliðna helgi langaði okkur í góðan mat og við vorum að spá í að elda gæsabringur sem við áttum í frystinum.  Því miður vorum við of sein að taka þær út úr frystinum og urðum því að finna eitthvað annað til að elda.  Niðurstaðan var sú að ég fór og keypti svínarif sem ég eldaði að hætti hússins – ofnsteikt í rúma 3 tíma.  Þegar kjötið var tekið út var hrundi það nánast af beinunum og þannig eiga rifjasteikur að vera!  Kryddað með grillkryddi, penslað með heimatilbúinni grillsósu.  Með þessu drukkum við Claremont Coonawarra Cabernet Sauvignon Reserve 2006. Þetta er dökkt og fallegt vín, enn nokkuð ungt að sjá.  Í nefinu áberandi berjakeimur, einkum kirsuber en einnig plómur og súkkulaði, ásamt vott af myntu.  Sama bragð þegar í munninn er komið, einkum berjakeimurinn.  Ekki mikið af tannínum en þokkaleg fylling.  Sæmilegt eftirbragð.  Einkunn: 7,0.

{ 0 comments }

Góður Beaujolais

08.09.2009

Í gær prófaði ég Beaujolais-vín, nánar tiltekið George Duboeuf Morgon Cru Beaujolais 2006.  Ég hef lengi vel haldið mig frá þessum vínum, sennilega vegna Beaujolais Nouveau.  Það er auðvitað tóm vitleysa, því Cru Beaujolais á sko ekkert skylt við Nouveau.  Þetta er eins og að vilja ekki Opus One af því að maður er ekkert [...]

Lesa meira →

Allegrini La Grola 2005

10.18.2008

Ágætis rauðvín frá Veróna-héraði á Ítalíu.  Allegrini er einn af stærri og betri framleiðendunum á þessu svæði og ég kynntist nokkrum af vínum Allegrini þegar fjölskylda mín var stödd við Garda-vatn í fyrra.  Í kvöld eldaði ég rifjasteik (uppskrift í Landsliðsbók Hagkaupa) og ákvað að fá mér La Grola 2005 með því.  Þetta er ekki [...]

Lesa meira →