Posts tagged as:

Svínarif

Helgarfrí

Höfundur: Eiríkur Þann 9. júlí 2011

Nú er ég kominn í helgarfrí og það styttist í sumarfrí – aðeins tvær vikur eftir!  Helginni var fagnað í gær með grilli og tilheyrandi – grilluð svínarif með grillsósunni minni og öðru meðlæti, namm!  Með þessu drukkum við Seghesio Zinfandel 2009 og það verður að segjast eins og er, að þó að vínið hafi verið firna gott þá passaði það auðvitað engan veginn með svona mat en naut sín miklu betur eftirá.  Þessi árgangur er ekki alveg jafn góður og hið magnaða 2007 en engu að síður mjög gott vín – Einkunn: 8,5 – Góð Kaup!

Ég opnaði líka Dr. Loosen riesling 2010, létt og þægilegt vín eins og þýsk riesling eiga að vera, kannski aðeins of grösugt í bragði en engu að síður góð kaup (kostar aðeins um 70 SEK).  Það passaði a.m.k. vel með eftirréttinum sem voru ber með vanillurjóma.

{ 1 comment }

Rifjaveislan

Höfundur: Eiríkur Þann 5. maí 2010

Um síðustu helgi langaði okkur í rifjasteik. Svona alvöru steik sem er mjúk og safarík, en samt svo vel elduð að það nægir að hrista steikna pínulítið, þá skilja beinin sig frá kjötinu! Ég keypti því fullt af svínarifjum sem ég henti inn í ofn í nokkra klukkutíma. Svo bjó ég til gómsæta grillsósu til að bera fram með rifjunum. Sósan er reyndar samkvæmt uppskrift í Grillbók Hagkaupa en ég ákvað síðar um kvöldið að verkefni sumarsins verður að þróa mína eigin grillsósu.

Keizarinn og Dr. Leifsson mættu í mat ásamt spúsum sínum og voru bara nokkuð ánægðir með veitingarnar.  Með rifjunum drukkum við Montecillo Rioja Crianza 2006 sem var bara nokkuð gott.  Sólber, pipar, smá leður og óvenjumikill eikarkeimur reyndar fyrir Crianzavín.  Létt tannískt, góð fylling og þétt eftirbragð.  Einkunn: 7,5 – Góð Kaup!

{ 0 comments }

Sjö dauðazindir

10.29.2009

Svo gæti maður íslenskað (?) nafnið á rauðvíninu sem ég smakkaði í fyrrakvöld – 7 Deadly Zins heitir það og er, eins og nafnið gefur til kynna, amerískur zinfandel, árgangur 2007. Það hefur hlotið ágæta dóma og Einar Brekkan benti mér á að prófa þetta vín við tækifæri. Ég eldaði lasagna og ákvað að prófa [...]

Lesa meira →