Posts tagged as:

Syrah

Gleymdi að panta!

Höfundur: Eiríkur Þann 18. október 2009

Já, það er skömm frá að segja en ég hreinlega gleymdi að panta mér Bordeaux 2006 í síðustu viku!  Valið stóð helst á milli Talbot, Léoville-Barton og Chasse-Spleen en nú verð ég að bíða fram í lok næstu viku til að sjá hvort það sé eitthvað eftir handa mér.  Ég var reyndar orðinn pínu þreytt, enda búinn að vera á næturvöktum alla vikuna og var einmitt á leið í vinnuna þegar ég mundi eftir þessu, en svona er þetta nú bara.  Sem betur fer var þetta ekki annar 2005-árgangur – þá hefði maður jafnvel tekið frí frá vinnu til að ganga frá pöntuninni.

Ég fór þó í ríkið á föstudaginn og keypti mér Chateau Mont-Redon Chateauneuf-du-Pape 2005.  Þetta var ágætisvín, kannski örlítið daufara en ég hafði gert mér vonir um.  Líkt og mörg önnur Rónarvín er það að mestu leyti gert úr Grenache (65%), Syrah (15%) og Cinsault (10%), en nokkrar aðrar þrúgur hafa líka slæðst með.  Það hefur dálítið blautan eikarkeim, ber og lakkrís í annars dálítið fátæklegri lykt.  Í munni nokkuð gott jafnvægi þar sem áðurnefnd lyktar- og bragðelement koma ágætlega fram ásamt smávegis pipar.  Sæmilegt eftirbragð.  Einkunn: 6,5 – pínulítil vonbrigði með þetta vín þar sem ég borgaði 234 SEK fyrir það.

Ég keypti líka Ný-Sjálenskt rauðvín sem heitir Wild Rock Gravel Pit Red 2008, blanda Merlot og Malbec, og ég held örugglega að þetta sé í fyrsta sinn sem ég smakka slíka blöndu.  Þetta er unglegt vín að sjá, ilmur af eik, plómum, myntu og súkkulaði sem skila sér í bragðinu, sem er nokkuð tannískt og skortir aðeins upp á sýru til að vega upp á móti tannínunum.  Ágætis hversdagsvín og mun betri kaup en frakkinn sem ég fjallaði um hér að ofan.  Einkunn: 6,5 – kostar 99 SEK.

{ 0 comments }

Fyrir næstu innkaupaferð

Höfundur: Eiríkur Þann 8. september 2007

Það hefur verið fátt um fína drætti í mínum vínkaupum að undanförnu. Guðrún kom reyndar heim með Torres Mas La Plana og Penfolds Bin 407 í gær, sá síðarnefndi kærkominn gamall vínur sem ekki er fáanlegur hér í sænska systeminu. Mig dauðlangar þó að fara að panta mér eitthvað skemmtilegt og hef því verið í rýna í tímaritin og fylgjast með spjallinu á netinu. Eftir því sem ég kemst næst þá eru bestu kaupin núna í Beaujolais, Pinot Noir (hvaðanæva að úr heiminum) og síðast en ekki síst í Rhone. Hér er í öllum tilvikum átt við 2005-árganginn, en í Rhone þykir hann einn sá besti í manna minnum (þarf a.m.k. að fara aftur til 1978 og 1961 til að finna sambærilega árganga). Chablis og Bordeaux eru jú líka mjög góðir, og …
Almennt má segja að 2005 sé feikna gott ár og óhætt að kaupa flest sem tilheyrir þeim árgangi.

Nokkrar ábendingar um góð kaup í vínbúðum ÁTVR:

Marques de Riscal Rioja Riserva 2002 (1.690 kr) – 5 stjörnur og Best Value í Decanter
Campo Viejo Rioja Riserva 2002 (1.290 kr) – 3 stjörnur í Decanter
Philip Shaw No 11 Chardonnay 2005 (2.990 kr)
Montes Alpha Syrah 2005 (1.590 kr) – 92 stig í Wine Spectator
Beringer Cabernet Sauvignon Private Reserve – (3.800 – ef þetta er rétt verð þá er það hreint og beint hlægilegt og bendir frekar til einhverra mistaka hjá ÁTVR, því fyrir nokkrum árum kostaði þetta vín tæplega 10.000 – fyrir þá sem fengu!)

Ef einhver í Svíþjóð les þetta þá bendi ég á:
Goats do Roam in Villages 2004 (88782 – 99 SEK, þarf að sérpanta)
Montes Alpha Syrah 2005 (86787 – 159 SEK, þarf að sérpanta)
Louis Jadot Beaujolais-Villages 2005 (83873 – 99 SEK, þarf að sérpanta)
Château Batailley 2001 (97889 – 299 SEK, nýjung í september, tímabundið í sölu)

Góða helgi!

{ 0 comments }

Louis Bernard Chateauneuf du Pape 1999

07.30.2006

Ryðrautt, talsverður þroski og dýpt. Fallegt vín. Mjög fersk lykt af sjörnuávexti, lime, útihúsum og lakkrís. Mild og þægileg lykt, fáguð með góðan karakter – vottar fyrir myntu og eik (örlítil skápalykt), jafnvel reykjarkeim. Vín í mjög góðu jafnvægi. Fínlegt, góð fylling, tiplar létt á tungu. Fágað og vel gert vín (aðgengilegt).

Lesa meira →

Firriato Santagostino Baglio Soria 2001

07.30.2006

Fallegur liur, ágæt dýpt en aðeins skýjað að sjá og fremur unglegt. Lakkrís og vel þroskaðar plómur koma fram áður en víninu er þyrlað. Plómurnar magnast við þyrlun en einnig er lykt af vanillu og brenndri karamellu. Þægileg og sérstök lykt. Talsvert tannín og meðal fylling. Kryddað og kröftugt vín með skemmtilegan karakter. Ágætt eftirbragð [...]

Lesa meira →

Inycon Syrah 2001

07.30.2006

Miðlungsdökkt að sjá, unglegt, lítil dýpt. Kirsuber, vottur af pipar og leðri í annars einfaldri lykt. Hæfilega tannískt, sýra yfir meðallagi, ávaxtaríkt, þolir eflaust að bíða í 2-3 ár. Eftirbragðið í styttri kantinum, ber keim af sýrunni. Einkunn: 6,0

Lesa meira →