Posts tagged as:

Torres

Mas La Plana 2006

Höfundur: Eiríkur Þann 11. desember 2010

Um daginn opnaði ég Torres Cabernet Sauvignon Gran Reserva Mas La Plana 2006vín sem hefur alltaf verið í miklum metum hjá mér og ég varð ekki fyrir vonbrigðum í þetta skipti.  Vínið er enn ungt og á eftir að batna með geymslu í nokkur ár til viðbótar.  Í nefinu er góð leður- og berjalykt, smá tóbak og krydd.  Vínið er vel tannískt, góð fylling og þétt eftirbragð sem heldur sér vel.  Smellpassaði við nautalundina!  Einkunn: 8,5 – Góð Kaup!

{ 0 comments }

Árshátíð Vínklúbbsins

Höfundur: Eiríkur Þann 21. mars 2010

Vínklúbburinn hélt sína margrómuðu árshátíð í gær í veiðihúsinu við Grímsá í Borgarfirði.  Því miður var ég (að vanda) fjarri góðu gamni og löngu kominn tími á að bóka helgarferð í marsmánuði til að geta tekið þátt í þessari mögnuðu veislu.  Okkur tókst þó að fá smá nasaþef af veislunni í ár, því ég bauð Keizaranum í mat og bauð upp á sama matseðil og vínklúbburinn fékk.

Í forrétt var humar með hvítlauk, villisveppum og papriku.  Frábær réttur sem vakti einróma lukku hjá öllum sem hann smökkuðu (nema Örnu!).  Með humrinum drukkum við Domaines Schlumberger Gewurztraminer Les Princes Abbés Alsace 2007.  Ljósleitt vín með sætri angan af perum, sítrónu og smá rósakeim.  Í munni var vínið aðeins sætara en maður býst við af Gewurztraminer, góð sýra og fylling, örlítill möndlukeimur en þó ekki þessi týpiski hnetukeimur sem maður fær oft í Gewurztraminer.  Frísklegt vín sem smellpassaði með humrinum og vakti mikla ánægju.  Einkunn: 8,0 – Frábær Kaup! (SEK 149)

Í aðalrétt var lambakóróna með kóríanderraspi, parmakartöflum og juce, ásamt zucchini, kirsuberjatómötum og basiliku.  Við höfum hingað til verið hálf-skeptísk þegar kemur að sænsku lambakjöti og haft vissa fordóma gagnvart því, en í gær fengum við frábært lambakjöt, auðvitað frá Anderson & Tillman (kjötframleiðendur í Uppsala).  Kjötið var reyndar marinerað en ég hreinsaði bara marineringuna burt.  Kjötið var lungnamjúkt og bragðgott, og meðlætið var líka mikið lostæti.  Með kjötinu drukkum við Torres Gran Coronas Cabernet Sauvignon Reserva 2005.  Fallega rautt vín með sæmilega dýpt.  Í nefi áberandi eikartónar ásamt kryddum, vanillu og kirsuberjum.  Í munni er vínið ágætlega tannískt en þó farið að mýkjast, gott jafnvægi, smá kakó, kirsuber og eik.  Gott eftirbragð.  Einkunn: 7,0 – Góð Kaup. (SEK 89 / ISK 2599)

Í eftirrétt var bláberjakaka með garðablóðbergsís, bláberjasósu og skyrmús (ég þurfti reyndar að nota tyrkneskt jógúrt í staðinn fyrir skyr, sem því miður er ekki fáanlegt hér í Uppsölum).  Kakan var mjög góð, ísinn dálítið sérstakur en samt mjög góður.  Mjög íslenskur eftirréttur!  Passar eflaust vel með freyðivíni, en því miður hafi ég ekkert slíkt á boðstólum.  Í staðinn fengum við okkur kaffi og Camus Napoleon koníak…

Frábært kvöld og ég get ímyndað mér að stemmningin á árshátíðinni hafi verið stórkostleg að vanda.

{ 1 comment }

Torres og nautið

08.30.2009

Í gær buðum við nokkrum nágrönnum í grill – eitthvað sem lengi hefur staðið til en ekki orðið af fyrr en nú.  Við grilluðum rauðvínsmarineraða nautasteik og með því bárum við fram kartöflugratín, salat og villisveppasósu.  Krakkarnir fengu grillaða hamborgara og voru alsælir með það.  Með nautinu drukkum við Torres Gran Coronas Reserva 2005.  Þetta [...]

Lesa meira →

Vín með hreindýri

01.22.2009

Guðjón vinur minn hafði samband við mig í gær og leitaði ráða varðandi val á víni með hreindýrasteik.  Hann og Dóri vinur hans ætla að bjóða konunum sínum upp á þríréttaða veislumáltíð og eftir að hafa heyrt matseðilinn fékk ég sko vatn í munninn.  Meðal annars ætla þeir að elda hreindýrasteik og með slíku lostæti [...]

Lesa meira →

Kaup ársins

12.31.2008

Þegar kemur að því að velja bestu kaup ársins eru mörg vín sem koma til greina. Bodegas Ramón Bilbao Rioja Crianza 2005 er magnað Riojavín sem kostar aðeins 70 sænskar krónur.  Því miður ekki fáanlegt á Íslandi en engu að ein bestu kaup ársins. Guigal Côtes du Rhone 2004 er alltaf pottþét að eiga og [...]

Lesa meira →

Ennþá sambandslaus

03.27.2008

Það virðist ekki vera nokkur lausn í sjónmáli í deilu TeliaSonera og Cogent Communications, en þessi fyrirtæki eiga í barnalegri deilu um samskipti á Netinu og talast nú ekki við. Það væri svo sem í lagi ef það þýddi ekki um leið að þau loka á öll samskipti notenda sinna við net sem andstæðingurinn tengist, [...]

Lesa meira →

Torres Marimar Sonoma Russian River Valley Pinot Noir 2001

11.13.2006

Lýsing: Mjög opið vín með reyk, rifsberja og kirsuberja lykt. Tannínríkt vín með bragði af rifsberjum, eik, ristuðu brauði, og smá jarðaber í bakgrunni. Eftirbragðið er langt og tannínríkt. Niðurstaða: Ég hef alltaf sagt að bestu bandarísku Pinot Noir vínin eru þau sem eru ekki að reyna að líkjast Búrgund heldur búa til sín eigin [...]

Lesa meira →

Miguel Torres Cabernet Sauvignon Curicó Manso de Velasco Reserve 1997

01.01.2001

Dökkt vín og nokkuð djúpt, fremur ungt. Lyktin góð en einföld – sólber, leður, mynta og eik. Vínið mjög tannískt og kröftugt í munni, á greinilega nóg eftir. Gott með nautasteikinni eftir nokkur ár. Einkunn: 7,0

Lesa meira →