Posts tagged as:

Torricella

Ítalska kvöldið

Höfundur: Eiríkur Þann 18. apríl 2010

Um síðustu helgi héldum við ítalskt kvöld heima hjá Einari Brekkan.  Við hittumst þar - ég, Einar og Johan Heinius – og elduðum stórfenglega ítalska máltíð.  Við tókum á móti gestunum með kampavíni og með því gæddum við okkur á Sedani al formaggio (sellerí með ostasósu) og Crostini alla Napoletana.  Síðan var boðið upp á Carpaccio, Pasta alla Grímsá (humarpasta alla Gutti), Risotto con fegatini (risotto með kjúklingalifur), Spinaci gratinati (gratínerað spínat), Asparagi alla Parmigiana (aspas med parmesan), Caprese (Mozarella með tómötum og basilíku) og Farsumagru (fyllt nautasteik). Þvílíkt lostæti allt saman og auðvitað verður það alltaf betra í góðra vina hóp.

Með Carpaccio drukkum við barolo frá árinu 1997 (man því miður ekki hvað það heitir – Einar, þú manst það kannski?).  Hvítvínið með pastanu og risottonu var Barone Ricasoli Torricella 2008 og með aðalréttinum drukkum við Antinori Tignanello 2001.

Stórkostlegt kvöld – takk fyrir mig!

{ 0 comments }

Ítalskt kvöld

Höfundur: Eiríkur Þann 9. apríl 2010

Á morgun er ítalskt kvöld, nánar tiltekið Toscana-kvöld.  Við ætlum að hittast nokkrir vinnufélagar, elda saman góðan mat og drekka góð vín.  Við ætlum að elda Toscana-mat (a.m.k. ítalskan mat) og drekka Toscana-vín.  Einar Brekkan sér um stærstan hluta matseðilsins en ég kem með forrétt og ætla að gera humar- og villisvepparéttinn sem ég gerði um daginn, nema að nú verður hann borinn fram sem pastaréttur.  Ég er búinn að ná mér í íslenskan humar, ítalska villisveppi og búinn að finna Toscana-hvítvín sem ætti að passa vel með (Torricella Chardonnay 2008 frá Barone Ricasoli).  Ég er líka að spá í að bæta hörpuskel við þetta, en ég var einmitt að fá þessa fínu íslensku risahörpuskel.  Einhverjar skoðanir á þessu?

Annars lenti ég óvænt á bakvakt um helgina og get því lítið lyft mér upp nema á laugardaginn (er laus við vaktina það kvöld).  Systir mín var líka að eignast dóttur í gær og það er auðvitað ærin ástæða til þess að fagna!

{ 0 comments }