Posts tagged as:

Toscana

Lúxusvandamál

09.13.2010

Ég á við ákveðið lúxusvandamál að stríða um þessar mundir.  Ég fór á laugardaginn ásamt Keizaranum og sótti pöntunina okkar.  Við (aðallega ég) urðum þó fyrir smá áfalli þegar heim var komið, því Brancaia Tre sem við pöntuðum reyndist vera annar árgangur en sá sem við pöntuðum – 2008 en ekki 2007!  Nú reyndust góð [...]

Lesa meira →

Ítalskt kvöld

04.09.2010

Á morgun er ítalskt kvöld, nánar tiltekið Toscana-kvöld.  Við ætlum að hittast nokkrir vinnufélagar, elda saman góðan mat og drekka góð vín.  Við ætlum að elda Toscana-mat (a.m.k. ítalskan mat) og drekka Toscana-vín.  Einar Brekkan sér um stærstan hluta matseðilsins en ég kem með forrétt og ætla að gera humar- og villisvepparéttinn sem ég gerði [...]

Lesa meira →

Grilluð Entrecote og vín ársins

02.21.2010

Í gær grillsteikti ég entrecote sem tókst ákaflega vel.  Við keyptum nefnilega fjórðung af nautaskrokki í haust og þetta kjöt er alveg einstaklega gott – mun betra en það sem ég hef verið að kaupa hér úti í búð.  Ég er líka loksins búinn að læra að nota grillpönnuna mína og nýti nú hvert tækifæri [...]

Lesa meira →

Góð uppskera í vikulok

02.12.2010

Þetta er búin að vera ágæt vika.  Ég er reyndar búinn að vera á bakvakt alla vikuna en er núna kominn í helgarfrí.  Þetta var róleg vika, lítið um hringingar og til að bæta um betur vann Arsenal leikinn gegn Liverpool, Man U gerði jafntefli og Chelsea tapaði.  Sem sagt mjög góð vika.  Það var [...]

Lesa meira →

Sushi, afmæli og heimsóknir

01.31.2010

Síðastliðin vika var frekar róleg hjá okkur. Guðfinna Ósk átti afmæli í gær og vikan fór að nokkru leyti í það að undirbúa veisluna. Von var á 15 gestum og eftirvæntingin mikil. Því miður þurfti þó að aflýsa heimsókninni á síðustu stundu þar sem ælupest skaut upp kollinum. Það breytti þó ekki því að við [...]

Lesa meira →

Frábær kaup!

01.17.2010

Síðastliðna viku hef ég nánast verið rúmliggjandi með þursabit en er nú allur á batavegi.  Ég reyndi að nota tímann í eitthvað gagnlegt og kannaði m.a. stöðuna á sérpöntunarlistanum hjá systembolaget.  Nánar tiltekið var ég að athuga hvort að Brancaia Tre 2007 væri ekki örugglega komið til innflytjandans, Johan Lidby Vinhandel.  Þetta vín lenti nefnilega [...]

Lesa meira →

Vín ársins!

01.10.2010

Jæja, þá er komið að því að útnefna vín ársins 2009.  Nokkuð mörg vín komu til álita að þessu sinni, flest þeirra í ódýrari kantinum, enda árið 2009 sannkallað kreppuár hjá neytendum en góðæri hjá mörgum framleiðendum sem hingað til hafa einkum framleitt vín í ódýrari kantinum. Amalaya de Colomé 2007 kemur frá Calchaqui-dalnum í [...]

Lesa meira →

Topp 100: Sæti 6 – 10

11.18.2009

Hér eru vínin sem lentu í sætum 6 – 10 á topp-100 lista Wine Spectator: 6. Chappellet Cabernet Sauvignon Napa Valley Signature 2006 (Bandaríkin, Kalifornía) – 94 punktar ($42) – “Assertive herb, anise, blackberry and wild berry fruit is tight, firm, tannic and well-structured, picking up depth and length on the finish. Best from 2010 [...]

Lesa meira →

Góð Kaup!

08.08.2009

Í gær kom ég heim úr stuttri útlegð í Dölunum.  Guðrún eldaði Lasagna og mig langaði í eitthvað ítalskt vín með því.  Ég skrapp því út í Vínbúð og kom heim með Villa Puccini Toscana 2006.  Vínið kostar ekki nema 83 SEK / 1.798 ISK og er hverrar krónu virði!  Þetta er djúprautt vín með [...]

Lesa meira →

Kvöldið góða

03.02.2009

Síðastliðið laugardagskvöld var “opnaðu flöskuna”-kvöldið – tilefni handa þeim sem hafa beðið eftir rétta tækifærinu til að opna flöskuna góðu sem legið hefur í kælinum, en aldrei verið opnuð þar sem tilefnið hefur látið á sér standa.  Ég hef átt eina góða – Tenuta dell’Ornellaia Bolgheri Superiore Ornellaia 2002 – sem ég fékk fyrir nokkru [...]

Lesa meira →