Posts tagged as:

Vín ársins

Jólaævintýri ritstjórans

01.07.2010

Við brugðum undir okkur betri fætinum og héldum til Íslands yfir jól og áramót – í fyrsta skipti síðan 2002 að við höldum jól og áramót á Íslandi.  Ferðin var þó hálf endasleppt því ég var kominn með hita nóttina fyrir brottför, var hundslappur um morguninn og nánast eins og liðið lík þegar við lentum [...]

Lesa meira →

Vín ársins 2009

11.20.2009

Þá er það ljóst – vín ársins 2009 hjá tímaritinu Wine Spectator er Columbia Crest Columbia Valley Cabernet Sauvignon Reserve 2005!  Þetta er tiltölulega ódýrt vín frá “venjulegum” bandarískum framleiðanda, sem hingað til hefur verið þekktur fyrir góð vín á góðu verði.  Hann hefur ekki verið að gera neina “blockbusters” hingað til en kannski verður [...]

Lesa meira →

Topp 100: Sæti 6 – 10

11.18.2009

Hér eru vínin sem lentu í sætum 6 – 10 á topp-100 lista Wine Spectator: 6. Chappellet Cabernet Sauvignon Napa Valley Signature 2006 (Bandaríkin, Kalifornía) – 94 punktar ($42) – “Assertive herb, anise, blackberry and wild berry fruit is tight, firm, tannic and well-structured, picking up depth and length on the finish. Best from 2010 [...]

Lesa meira →

Drífa sig að panta!

11.17.2009

Já, nú er sko að drífa sig að panta réttu vínin áður en topp-100 listinn verður gerður opinber.  Ég pantaði mér einu flöskuna sem fáanleg var í Svíþjóð af Landmark Syrah Sonoma Valley Steel Plow 2006, sem fékk 94 punkta og endaði í 19. sæti.  Ég reyndi að panta mér einu flöskuna sem átti að [...]

Lesa meira →

Vín ársins 2009

11.15.2009

Í næstu viku mun Wine Spectator hefja niðurtalninguna í útnefningunni á Víni Ársins 2009.  Opinberlega verður byrjað að telja niður á miðvikudag, þegar vínin í sætum 10-6 verða tilkynnt og á fimmtudag verða vínin í sætum 5-2, en sem áskrifandi að winespecator.com fæ ég upplýsingar á mánudag.  Fjallað verður um niðurtalninguna hér á Vínsíðunni og [...]

Lesa meira →

Smakkarinn.is velur vín ársins

01.14.2009

Stefán Guðjónsson á smakkarinn.is er einn af helstu vínsérfræðingum Íslands og hann hefur tilnefnt vín ársins 2008 – Chateau Lagrange 2004: Þá er komið að besta víninu sem ég smakkaði árið 2008! Vínið kemur frá einu besta ef ekki besta og þekktasta  vínræktar svæði heims, Bordeaux. Þeir sem þekkja mig vita að ég lít ekki [...]

Lesa meira →

Vín ársins 2008

01.02.2009

Carmenére var talin útdauð í Chile eftir að rótarlúsin phylloxera barst þangað um 1880.  Árið 1993 fannst Carmenére þó aftur í Chile og það er enn sem komið er eina landið þar sem þrúgan er ræktuð í einhverju magni.  Á síðustu árum hafa komið fram mörg vín byggð á Carmenére, sum hver ansi mögnuð.  Þar [...]

Lesa meira →

Jólavínin

12.31.2008

Í ár brugðum við út af venjunni með jólamatinn okkar.  Við vorum orðin þreytt á þungum og reyktum jólamatnum og vildum prófa eitthvað annað.  Niðurstaðan varð kalkúni sem lagður var í kryddaðan saltpækil og tókst alveg frábærlega vel.  Forrétturinn var risahörpuskel með balsamvinaigrette að hætti Gutta.  Mamma og pabbi hafa verið hjá okkur yfir jólin [...]

Lesa meira →

Vín ársins

11.12.2008

Wine Spectator er nú byrjað að birta vínin á topp 10 á hinum árlega lista sínum yfir 100 bestu vín ársins.  Nú hafa verið birt hvaða vín lentu í sætum 7-10. Í 10. sæti er Seghesio Zinfandel Sonoma County 2007, 93p/24$. Í 9. sæti er Mollydooker Shiraz McLaren Vale Carnival of Love 2007, 95p/90$. Í [...]

Lesa meira →

Vín ársins 2007

01.20.2008

Ég hef nú ákveðið að vín ársins 2007 hjá Vínsíðunni sé hið stórkostlega Markus Molitor Wehlener Sonnenuhr Riesling Auslese** 2005 (sjá umsögn annars staðar á síðunni). Ég gaf víninu 9,5 í einkunn og það hlaut 97 stig hjá Wine Spectator. Það besta er svo að vínið kostaði ekki nema rúmar 250 krónur sænskar (u.þ.b. 2.500 [...]

Lesa meira →