Höfundur: Eiríkur Þann 31. janúar 2009
Hófleg víndrykkja getur dregið úr hættu á getuleysi hjá körlum, skv. nýlegri rannsókn, sem vísindamenn við University of West Australia unnu að. Samkvæmt rannsókninni var getuleysi á meðal karla sem drekka vín reglulega ekki jafn algengt og á meðal þeirra sem ekki drekka vín. Munurinn er um 25% víndrykkjumönnum í hag.
Þetta á þó aðeins við um þá sem drekka vín reglulega og í hófi. Það er vel þekkt að óhófleg áfengisneysla eykur hættu á getuleysi og dregur auk þess mjög úr bólfiminni. Þá hefur óhófleg áfengisneysla ýmis önnur skaðleg áhrif.
Höfundur: Eiríkur Þann 2. janúar 2007
Af www.mbl.is
Þeir sem hafa of háan blóðþrýsting þurfa ekki að neita sér algerlega um áfengi, og geta meira að segja notið góðs af hófdrykkju, samkvæmt niðurstöðum bandarískrar rannsóknar. Hættan á að menn með háþrýsting fengju hjartaáfall minnkaði ef þeir fengu sér einn eða tvo drykki á dag. Frá þessu greinir fréttavefur BBC, en niðurstöðurnar eru birtar í Annals of Internal Medicine.
En sérfræðingar ítreka að of mikil áfengisneysla geti hækkað blóðþrýsting, og að þessar niðurstöður megi ekki túlka sem hvatningu til drykkju. 11.711 karlmenn tóku þátt í rannsókninni, og í ljós kom að eitt eða tvö glös af bjór, léttvíni eða sterku víni minnkuðu hættuna á hjartaáfalli, jafnvel meðal þeirra þátttakenda sem höfðu of háan blóðþrýsting. Fyrri rannsóknir hafa sýnt að áfengisneysla dregur úr hættunni á hjartaáfalli með því að auka magn „góðrar“ blóðfitu, og ef til vill einnig með því að þynna blóðið.