Posts tagged as:

Vínklúbburinn

Árshátíðin

Höfundur: Eiríkur Þann 2. júní 2011

Vínklúbburinn Reinhardt hélt fyrstu árshátíð sína um síðustu helgi.  Þemað var ítalskt – bæði matur og vín.  Í forrétt gerðum við Carpaccio og með því drukkum við Stefano Antonucci Verdicchio Classico Riserva 2007.  Það var nokkuð sérstakt vín og í fyrsta sinn (að ég held) sem við prófuðum vín úr þessari þrúgu.  Vínið er gyllt á lit, góð dýpt.  Dálítið sætur keimur af hnetum, vanillu, sítrónum, ferskjum og smá eik.  Góð fylling í bragðinu, þar sem hnetukeimurinn kemur betur fram.  Gott eftirbragð sem heldur sér vel.  Einkunn: 8,0 – Góð Kaup.

Í aðalrétt bárum við fram grillaða kálfaentercote með gratíneruðum aspas, rjómalagaðri kartöflumús og klettasalati.  Kálfakjötið þótti takast afar vel upp og vakti mikla lukku.  Með því drukkum við Fontanafredda Barolo Serralunga d’Alba 2007.  Vínið var dökkt og fallegt að sjá, í nefinu eik, lakkrís, kakó, kirsuber og smá tóbak.  Dálítið tannískt, gott jafnvægi, langt og gott eftirbragð.  Mjög gott vín sem óhætt er að mæla með.  Einkunn: 8,5 – Góð kaup.

Að lokum var borinn fram semifreddo að hætti Keizarans, og vitaskuld þótti það ákaflega gott!  Vel lukkað kvöld sem endaði ekki alveg nógu vel fyrir dr. Leifsson, sem er dyggur stuðningsmaður Manchester U…

{ 0 comments }

Árshátíðir vínklúbbanna

Höfundur: Eiríkur Þann 21. maí 2011

Post image for Árshátíðir vínklúbbanna

Það hefur verið frekar hljótt hér á Vínsíðunni að undanförnu og er þar ýmsu um að kenna.  Ég hef verið önnum kafinn í vinnunni, verið á dálitlu flandri í tengslum við það og einnig verið upptekinn við að koma frá mér vísindagrein.  Nú hefur heldur róast á þessu sviði og því hægt að halda áfram með vínrannsóknir!  Mamma og pabbi hafa verið í heimsókn hjá okkur undanfarna viku og þau komu með Muga Rioja Reserva 2006, ákaflega gott Riojavín sem smellpassaði með nautasteikinni.  Góður eikar- og leðurkeimur, smá vanilla og tóbak.  Einkunn: 8,5 – Góð Kaup!

Einar Brekkan gaf mér flösku af Kyburg Cabernet Sauvignon 2008.  Þetta vín er frá Stellenbosch-héraðinu í Suður-Afríku, lítill framleiðandi sem framleiðir einnig Merlot, Shiraz og svo blöndu af þessum þrúgum.  Framleiðslan er aðeins nokkur þúsund kassar og mér hefur ekki tekist að finna neina umsögn um þessi vín hjá neinum af hinum þekktari víngagnrýnendum.  Vínið er með góðan eikar- og tóbakskeim með smá súkkulaðitónum.  Gott vín sem passaði vel með kálfa-entrecote.  Einkunn: 8,5 – Góð Kaup.

Vínklúbburinn íslenski hélt árshátíð sína um síðustu helgi og að þessu sinni var þemað surf’n'turf.  Veislan mun að vanda hafa tekist til vel og mig er farið að langa verulega mikið að komast í þessa veislu enda nokkuð mörg ár síðan ég tók síðast þátt.  Litli vínklúbburinn í Uppsölum mun halda sína árshátíð um næstu helgi og þemað verður ítalskt, bæði hvað varðar mat og vín.  Þetta verður góð upphitun fyrir úrslitaleikinn í Meistaradeildinni, verst að það er fyrirfram ákveðið hverjir eigi að vinna í ár (sorrý Smári og Dr. Leifsson).

{ 0 comments }

Árshátíð Vínklúbbsins

03.21.2010

Vínklúbburinn hélt sína margrómuðu árshátíð í gær í veiðihúsinu við Grímsá í Borgarfirði.  Því miður var ég (að vanda) fjarri góðu gamni og löngu kominn tími á að bóka helgarferð í marsmánuði til að geta tekið þátt í þessari mögnuðu veislu.  Okkur tókst þó að fá smá nasaþef af veislunni í ár, því ég bauð [...]

Lesa meira →

Rólegt á Austurvígstöðvunum

03.07.2010

Það hefur verið rólegt að undanförnu hjá okkur – ég hef verið á vakt alla helgina og því ekki getað prófað neitt vín.  Vonandi verður gerð bragarbót á því um næstu helgi, en þá er úrslitakvöldið í sænska Melodifestivalen og við erum boðin í mat til vinafólks.  Melodifestivalen er mikil tónlistarveisla hjá svíanum – 4 [...]

Lesa meira →

Árshátíðin framundan

04.21.2009

Árshátíð Vínklúbbsins er framundan og líkt og venjulega missi ég af henni þar sem ég er búsettur í röngu landi. Hins vegar er ég að hugsa um að sameinast félögunum í anda og elda svipaðan/sams konar mat og boðið verður upp á í veislunni og reyna líka að ná mér í sömu vín og þeir [...]

Lesa meira →

Vínklúbburinn

05.14.2008

Á meðan á Íslandsheimsókninni stóð tókst mér að komast á fyrsta vínklúbbsfundinn í heil 6 ár! Óhætt að segja að það var löngu kominn tími á fund! Við prófuðum nokkur góð vín, m.a. Chateau Pibran 2004 og Almaviva 2003, sem er alveg einstaklega gott vín og kom verulega á óvart. Þéttur og öflugur bolti og [...]

Lesa meira →

Ohh, svo gott!

10.08.2007

Já, það er eiginlega besta lýsingin á hinu frábæra Markus Molitor Wehlener Sonnenuhr Riesling Auslese** 2005 sem ég opnaði nú í kvöld. Ég ætlaði eiginlega að halda upp á daginn í gær en af ýmsum ástæðum var flaskan ekki opnuð fyrr en í kvöld. Þetta er hreint út sagt æðislegt vín! Hnausþykkur epla- og apríkósukeimur, [...]

Lesa meira →

Enrique Mendoza Moscatel de la Marina

01.08.2007

Moscatel frá Alicante! Ljósleitt, loðir lengi innan á glasinu og greinilega sætt vín á ferð. Rúsínur, rúsínur og rúsínur. Einnig hunang, plómur, eik, eðalmygla og örlítið smjör. Vel sætt, hnausþykkt og góð fylling. Ágætt eftirbragð sem heldur sér nokkuð vel. Einkunn: 7,0

Lesa meira →

Castello Banfi Sant’Antimo Cum Laude Toscana 2000

11.19.2006

Auga: Fallegur kirsuberjarauður litur með meðaldýpt. Nef: Þroskuð kirsuber, eik, leður og hvítur pipar. Vottur af lakkrís og þétt blómaangan sem ekki var hægt að skilgreina frekar. Þægileg og spennandi lykt. Munnur: Líklega helst til ungt, í góðu jafnvægi og þægilegt í munni. Fyllti vel út í munninn, kryddað með kaffi/mokka-keim í eftirbragði. Skemmtilegur karakter [...]

Lesa meira →

Tenute Marchesi Antinori Chianti Classico Riserva 2001

11.19.2006

Fallegt vín, dökkt og dýpt í meðallagi. Fjólublá rönd Ilmur af kirsuberjum, hvítum pipar og kaffi. Vanillukeimur og hiti. Þétt og góð lykt. Gott jafnvægi í munni, tannískt en með sýru sem kemur vel á móti. Gott matarvín með góðri fyllingu. Einkunn: 8,0 Umsögn Vínklúbbsins

Lesa meira →