Posts tagged as:

Vínklúbburinn

Joseph Drouhin Beaune Clos Mouches 1999

11.19.2006

Ljóst vín með ótrúlegri dýpt. Einstaklega tært og góð þroskamerki í jaðrinum. Lykt af hindberjum og sætu sinnepi og jafnvel karrý. Útihúsalykt og púðurilmur líkt og skömmu eftir miðnætti um áramót. Saftkennt í byrjun en kemur svo kraftmikið inn með mikilli fyllingu og bragði af Hinberjum/jarðaberjum og góðu eftirbragði. Karakterríkur pinot. Frábært matarvín. Einkunn: 9,0

Lesa meira →

Jean-Luc Colombo Cotes du Rhone Les Forots V.V. 1999

11.19.2006

Auga: Meðal dýpt en fremur ljóst, skýjað. Byrjandi þroski. Nef: Áberandi útihús eða fremur lykt af hrossunum sjálfum (þægilegt) skemmtilegur karakter og mjög lofandi lykt, hvítur pipar, blýantur og leður. Ávöxturinn leysist úr læðingi við þyrlun og minnir á brómber. Munnur: Ágætis jafnvægi, tannískt með sýru til mótvægis. Áberandi krækiberjabragð í lokin. Helst til einsleitt. [...]

Lesa meira →

Concha y Toro Amelia Chardonnay 2001

11.19.2006

Fallega gullinn litur, með vott af grænni slikju. Peruangan og ilmur af ristuðu brauði mætir manni í fyrstu. Frekari ávaxtatónar aðskiljast og minntu á þurrkaða banana og græn epli. Einnig var vottur af vanillu og kryddi sem kveiktu hugmyndir um saffran. Vín í gríðarlega góðu jafnvægi, meðalþurrt, vel smurt og áferðarmjúkt með þægilegu eftirbragði. Perur [...]

Lesa meira →

Wynn’s Coonawarra Michael Shiraz 1998

07.30.2006

Mjög dökkt vín, fallega dumbrautt, góður byrjandi þroski, langir taumar. Plómur, tóbak, súkkulaði, vanilla, útihús og meira að segja bananar læðast inn um nasirnar! Vínið hefur góða fyllingu, gott jafnvægi, lakkrískeimur í annars svolítið stuttu eftirbragði. Einkunn: 9,0 Umsögn Vínklúbbsins

Lesa meira →

Chateau de Tertre Margaux 1999

07.30.2006

Glæsilegur litur með mikla dýpt en í meðallagi dökkt.  Ristað brauð með smjöri, kaffi og eik fyrir þyrlun. Eftir þyrlun hverfur ristaða brauðið, kaffi og eik verða meira áberandi. Einnig grænn pipar, leður, súkkulaði, fersk paprika og vanilla. Mild en margslungin lykt með gott jafnvægi.  Vín í mjög góðu jafnvægi með keim af kaffi, leðri [...]

Lesa meira →

Joseph Drouhin Musigny Grand Cru 1994

07.30.2006

Góð dýpt, ekta pinot-litur, fallegt vín, mjög góður þroski. Lokuð lykt, fersk jarðarber, hindber, jafnvel kirsuber. Flauelsmjúkt, langt og gott eftirbragð, afar þétt vín. Einkunn: 9,0

Lesa meira →

Joseph Drouhin Charmes-Chambertin Grand Cru 1998

07.30.2006

Ljósasta rauðvín sem klúbburinn hefur séð, mikil og falleg dýpt, góður þroski. Í nefi eik, brómber og blómailmur (rósir), vottur af kattahlandi. Flauelsmjúkt, fínlegt og fágað bragð (ballerina), stórkostlegt eftirbragð. Einkunn: 9,0

Lesa meira →

Geyser Peak Alexander Valley Cabernet Sauvignon Reserve 1996

07.30.2006

Þetta vín var árshátíðarvín Vínklúbbsins árið 2000. Cabernet Sauvignon er ókrýnd drottning rauðu þrúganna í Kaliforníu og líkt og aðrar rauðar þrúgur þarf hún nokkuð harðneskjulegar aðstæður til að gefa af sér góð vín. Í Alexander Valley, sem er rétt norðan við Napa Valley í Sonoma-héraði, er hins vegar mjög hlýtt og jarðvegur frjór. Víngerðarmenn [...]

Lesa meira →

Penfolds Bin 707 Cabernet Sauvignon 1998

07.30.2006

Mjög dökkt vín, afar mikil dýpt, góður þroski, miklir taumar (“long legs”). Óvenjumikil mynta í nefinu, súkkulaði, kaffi, sólber, eik og leður. Vel kryddað í munni, langt og þétt eftirbragð með góðum kaffikeim. Einkunn: 9,0

Lesa meira →

Alta Vista Alto 1998

06.23.2002

Auga: Blóðrautt, ungt, góðir taumar, góð dýpt. Nef: Reyktur lax! Eik, krækiber, kaffi, kirsuber, dál. aggressíf lykt. Munnur: Mikil tannin, góð fylling en dálítið hrjúft. Eftirbragðið frekar stutt. Nautavín. Kryddað með lakkrískeim. Þarfnast geymslu. Einkunn: 8,0 (Vínklúbburinn)

Lesa meira →