Posts tagged as:

Wine Spectator

Niðurtalningin hefst!

Höfundur: Eiríkur Þann 15. nóvember 2010

Í dag hefst niðurtalningin á þeim vínum sem skipa efstu sætin á topp-100 lista Wine Spectator í ár.  Í tilefni af niðurtalningunni er veittur ókeypis aðgangur að vefsíðu tímaritsins, www. winespectator.com.  Þar er mikinn fróðleik að finna og m.a. hægt að komast í gagnagrunn með yfir 200 þúsund víndómum!  Ég mæli eindregið með því að lesendur láti þetta tækifæri ekki fara forgörðun.

{ 0 comments }

Vín ársins komið í ljós?

Höfundur: Eiríkur Þann 7. september 2010

Einn af kostunum við að vera áskrifandi að Wine Spectator (fyrir utan online-aðganginn að gagnagrunninum þeirra og skemmtilegt blað að lesa) er ég fæ reglulega tölvupóst frá þeim um margt sem tengist vínum.  Sumt er bara aðgengilegt fyrir áskrifendur, annað er opið öllum.  Eitt af því sem bara áskrifendur komst í er s.k. Wine Spectator Advance, sem er 2 síðna bæklingur (pdf-skjal) yfir áhugaverðustu vínin sem fjallað er um í hverju blaði, og þennan bækling fá áskrifendur nokkrum dögum áður en blaðið sjálft kemur úr.  Ég var að renna í gegnum síðustu tvo bæklinga og fann nokkur áhugaverð vín, þar á meðal eitt sem mig grunar að eigi eftir að lenda hátt á listanum yfir vín ársins – gæti jafnvel komið til greina sem vín ársins!

Ég fann nokkur vín sem sum hver fást í almennum vínbúðum á Íslandi og í Svíþjóð, önnur þarf að panta:

  • Campo Viejo Tempranillo Rioja Reserva 2005 – 89 punktar (94 SEK / 2.250 ISK) – í almennri sölu (nr.6083)
  • Peter Lehmann Clancy’s Barossa 2007 – 90 punktar (2.999 ISK) – fæst á Eiðistorgi
  • Piccini Chianti 2009 – 86 punktar (75 SEK / 1.779 ISK) – í almennri sölu (nr. 22467)
  • Clos la Coutale Cahors  2008 – 88 punktar (119 SEK)

Svo er auðvitað rúsínan í pylsuendanum, Ruffino Modus 2007 sem fær 96 punkta og ætti ekki að kosta mikinn pening.  Það uppfyllir þar með helstu skilyrðin fyrir því að geta verið útnefnt vín ársins – gæði og verð, bara spurning um framleiðslumagn og aðgengi. Annað vín sem líka kemur til greina (að mínu mati) er hið stórkostlega púrtvín frá Dow (sem ég pantaði fyrir nokkru!).  Ruffino Modus er því miður hvorki fáanlegt á Íslandi né í Svíþjóð, en ég er búinn að senda fyrirspurn til innflutningsaðilans í Svíþjóð hvort það verði mikið mál að panta vínið í gegnum þá.  Ég hvet áhugasama á Íslandi til að gera slíkt hið sama  í einum grænum – talið við Ölgerðina og biðjið þá um að panta vínið eins og skot!  Ruffino á nokkur vín í sölu í báðum löndunum og því er ekki útilokað að hægt sé að komst yfir eins og einn kassa af þessu spennandi víni…

{ 0 comments }

Vín ársins 2009

11.20.2009

Þá er það ljóst – vín ársins 2009 hjá tímaritinu Wine Spectator er Columbia Crest Columbia Valley Cabernet Sauvignon Reserve 2005!  Þetta er tiltölulega ódýrt vín frá “venjulegum” bandarískum framleiðanda, sem hingað til hefur verið þekktur fyrir góð vín á góðu verði.  Hann hefur ekki verið að gera neina “blockbusters” hingað til en kannski verður [...]

Lesa meira →

Nammi namm!

10.04.2009

Já, hryggurinn var algjört nammi og ekki var vínið síðra!  Hryggurinn var eldaður á gamla mátann og var meyr og mjúkur þegar hann kom út úr ofninum.  Meðlætið var klassísk rauðvínssósa, kartöflur og salat.  Með þessu drukkum við svo Beringer Cabernet Sauvignon Private Reserve 2004.  Þetta er alvöru amerískur cabernet-bolti eins og ég vil hafa [...]

Lesa meira →

Ein fyrir framtíðina

08.28.2009

Loksins er þessari Falun-törn lokið í bili – 3 vikur af síðustu 4 hef ég kúldrast uppi á kvistherbergi (les. hótelherbergi) og látið mér leiðast.  Nú er því lokið í bili, næsta ferð er ekki fyrr en í Október.  Við fórum að versla í dag og ég kíkti í vínbúðina mína og sá þá ýmislegt [...]

Lesa meira →

Vín með hreindýri

01.22.2009

Guðjón vinur minn hafði samband við mig í gær og leitaði ráða varðandi val á víni með hreindýrasteik.  Hann og Dóri vinur hans ætla að bjóða konunum sínum upp á þríréttaða veislumáltíð og eftir að hafa heyrt matseðilinn fékk ég sko vatn í munninn.  Meðal annars ætla þeir að elda hreindýrasteik og með slíku lostæti [...]

Lesa meira →

Eru WS-verðlaunin bara sölubrella?

01.17.2009

Á hverju ári veitir Wine Spectator viðurkenningu til veitingahúsa sem státa af góðum vínlista. Hingað til hefur þetta þótt góð viðurkenning og m.a. hefur Fjalakötturinn fengið “Award of Excellence” s.l. 2 ár. En er eitthvað að marka þessi verðlaun? Það hef ég haldið, a.m.k. hingað til. Í morgun sá ég þó bloggfærslu þess efnis að [...]

Lesa meira →

Miðlungskvöld

12.04.2008

Já, það er eiginlega hægt að segja að vínsmökkunin heima hjá Dr. Leifssyni hafi verið miðlungskvöld hvað varðar vínin sem smökkuð voru, því þar var fátt sem stóð upp úr.  Partíið sem fylgdi á eftir var hins vegar ágætt! Fyrst prófuðum við Beringer Old Vine Zinfandel 2005.  Ljósleitt og ungt vín með angan af lakkrís, [...]

Lesa meira →

Topp 100 hjá WS

11.19.2008

Ég var að kíkja á topp-100 listann hjá Wine Spectator.  Sé að Chateau Clerc Milon 2005 er í 11. sæti og vinur minn Don Melchor 2005 frá Concha y Toro er í 12. sæti.  Síðan fer lítið fyrir kunnuglegum andlitum fyrr en kemur að 47. sæti þar sem Beringer Chardonnay Private Reserve 2006 hafnaði, en [...]

Lesa meira →

Vín ársins

11.12.2008

Wine Spectator er nú byrjað að birta vínin á topp 10 á hinum árlega lista sínum yfir 100 bestu vín ársins.  Nú hafa verið birt hvaða vín lentu í sætum 7-10. Í 10. sæti er Seghesio Zinfandel Sonoma County 2007, 93p/24$. Í 9. sæti er Mollydooker Shiraz McLaren Vale Carnival of Love 2007, 95p/90$. Í [...]

Lesa meira →