Posts tagged as:

Zinfandel

Gómsæt gæs

05.24.2009

Í gær ákváðum við að það væri kominn tími á gæsabringurnar sem við höfum átt í frystinum síðan í fyrra.  Það er auðvitað ómögulegt að láta svona fínt kjöt bíða of lengi og því ekki seinna vænna en að gæða sér á þessu lostæti. Ég ákvað að nota uppskrifina sem er að finna í Landsliðsbók [...]

Lesa meira →

Casa Lapostolle

04.19.2009

Í gær grillaði ég maískólfa og brasilíska nautalund, meðlætið kartöflur, bernaisesósa og salat. Með þessu drukkum við Casa Lapostolle Cuvée Alexandre Pinot Noir 2005.  Vínið er frá Casablanca-héraði í Chile og framleiðandinn Casa Lapostolle skaust nýlega upp á stjörnuhimin vínheimsins þegar Casa Lapostolle Clos Apalta 2005 var útnefnt sem vín ársins 2008 hjá Wine Spectator. [...]

Lesa meira →

Kominn tími á grillið?

04.01.2009

Ég skrapp út að borða áðan með vinnufélaga mínum (ég er staddur í Falun þessa viku og því miður er enginn veitingastaður á hótelinu, bara hægt að fá hefðbundinn hótelmorgunverð og ég “neyðist” því oft til að fara út að borða þegar ég er staddur hérna). Við fórum á stað sem heitir Banken – rótgróinn [...]

Lesa meira →

Kvöldið góða

03.28.2009

Í gær buðum við Evu (deildarstjóranum hennar Guðrúnar) og manninum hennar í mat.  Líkt og venja er þegar við bjóðum svíum í mat (a.m.k. þegar þeir koma í fyrsta skipti) þá buðum við upp á íslenskt lambakjöt.  Á undan bauð ég upp á s.k. “minisnäckor” (litlir smjördeigssnúðar með kalkúnakjötsfyllingu) og með því drukkum við Montes [...]

Lesa meira →

Seghesio Zinfandel 2007 kominn í Systemið!

03.27.2009

Nú er 2007 árgangurinn af Seghesio Zinfandel kominn í Systemið – fyrstir koma, fyrstir fá! Ég er búinn að kaupa nokkrar og ætla að prófa í kvöld. Ef það stendur undir væntingum (sem ég reikna fastlega með) þá kaupi ég örugglega meira! (Fyrir þá sem ekki vita hvað ég er að tala um, þá er [...]

Lesa meira →

Lambalæri og … ?

03.26.2009

Á morgun erum við með matargesti sem ekki hafa komið til okkar áður (deildarstjórinn hennar Guðrúnar og maðurinn hennar).  Að sjálfsögðu bjóðum við þeim upp á íslenskt lambakjöt – ofnsteikt lambalæri með villisveppasósu, Fondantes kartöflum og salati.  Ég er ekki alveg búinn að ákveða vínið með þessu – er að spá í Seghesio Zinfandel, gæti [...]

Lesa meira →

Vín og ostar á Valentínusardegi?

02.12.2009

Margir vilja gera sér dagamun á Valentínusardegi, degi elskenda.  Með góðum mat skal að sjálfsögðu fylgja gott vín, en hvað um eftirréttinn?  Hvað um vín og osta?  Jú, auðvitað er alltaf gott að fá sér vín og osta, en þá skiptir líka máli að velja saman vínin og ostana, ekki bara að kaupa nokkra góða [...]

Lesa meira →

Vín með hreindýri

01.22.2009

Guðjón vinur minn hafði samband við mig í gær og leitaði ráða varðandi val á víni með hreindýrasteik.  Hann og Dóri vinur hans ætla að bjóða konunum sínum upp á þríréttaða veislumáltíð og eftir að hafa heyrt matseðilinn fékk ég sko vatn í munninn.  Meðal annars ætla þeir að elda hreindýrasteik og með slíku lostæti [...]

Lesa meira →

Á slóðum Sveinka

12.11.2008

Um síðustu helgi brugðum við okkur til Mora í Dölunum, nánar tiltekið til Tomteland, sem á íslensku þýðir “Jólasveinaland”.  Þar hefst sænski jólasveinninn við ásamt álfum, tröllum og norninni.  Dæturnar voru alsælar, einkum eldri dóttirin sem fékk að fara í óþekktarskóla hjá norninni og fékk svo jólasveinaorku beint í æð úr miklum töfrasteini.  Við fullorðna [...]

Lesa meira →

Miðlungskvöld

12.04.2008

Já, það er eiginlega hægt að segja að vínsmökkunin heima hjá Dr. Leifssyni hafi verið miðlungskvöld hvað varðar vínin sem smökkuð voru, því þar var fátt sem stóð upp úr.  Partíið sem fylgdi á eftir var hins vegar ágætt! Fyrst prófuðum við Beringer Old Vine Zinfandel 2005.  Ljósleitt og ungt vín með angan af lakkrís, [...]

Lesa meira →